Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 04. september 2010 17:34
Gísli Erlendur Marinósson
Umfjöllun: Fjarðabyggð í miklum vandræðum eftir tap í Grafarvoginum.
Pétur Georg Markan skoraði  seinna mark Fjölnis í dag.
Pétur Georg Markan skoraði seinna mark Fjölnis í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Hrafn Davíðsson varði vítaspyrnu í leiknum.
Hrafn Davíðsson varði vítaspyrnu í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjarðabyggð hafði litla ástæðu til að fagna í dag, en þeir eru í stórhættu á að falla eftir leiki dagsins.
Fjarðabyggð hafði litla ástæðu til að fagna í dag, en þeir eru í stórhættu á að falla eftir leiki dagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Fjölnir 2 - 1 Fjarðabyggð
1-0 Sjálfsmark (53')
2-0 Pétur Georg Markan (86')
2-1 Sigurjón Egilsson (89')

Það var grátlega fámennt á Fjölnisvelli í dag þegar heimamenn tóku á móti Fjarðabyggð í 1. deildinni. Fyrir leikinn átti Fjölnir ennþá litla. en þó tölfræðilega, möguleika á að komast upp í Pepsi-deildina á meðan Fjarðabyggð sat í næstneðsta sæti og í mikilli fallhættu. Því var leikurinn nokkuð mikilvægur, sérstaklega fyrir gestina.

Fjölnismenn byrjuðu leikinn mun betur og Pétur Georg Markan fékk snemma tvö færi. Fyrst fór skalli hans fram hjá markinu og mínútu síðar átti hann skot utan teigs sem fór vel fram hjá. Heimamenn réðu síðan ferðinni megnið af fyrri hálfleiknum en sköpuðu sér fá færi framan af.

Á meðan náði Fjarðabyggð að vinna sig hægt og rólega inn í leikinn og þegar hálfleikurinn var tæplega hálfnaður átti Sandur Zoltan Forizs hörkuskot af löngu færi sem Hrafn Davíðsson varði vel í markinu.

Heimamenn héldu þó yfirhöndinni og Viðar Guðjónsson átti skot utan vítateigs, en það fór beind á Srdjan Rajkovic í marki gestanna. Eftir hálftíma leik átti Styrmir Árnason síðan skot af stuttu færi sem small í stönginni.

Þegar tók að líða á hálfleikinn fóru gestirnir síðan að pressa örlítið meira og Sveinbjörn Jónasson átti hættulegan flugskalla sem sigldi fram hjá marki Fjölnis. Skömmu síðar átti hann skot sem fór fram hjá. Seinasta færi hálfleiksins átti síðan Illugi Þór Gunnarsson, en skot hans fór rétt yfir markið. Staðan var því markalaus í hálfleik, en heimamenn voru þó talsvert betri aðilinn.

Fjölnir byrjaði seinni hálfleikinn af sama krafti og þeir höfðu spilað í fyrri hálfleik og Viðar Guðjónsson átti snemma skot við vítateigslínuna sem fór af varnarmanni og stefndi í markið, rétt undir slánni, en Rajkovic náði að handsama boltann.

Það var síðan á 53. mínútu sem fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós og það skoruðu heimamenn. Reyndar skoruðu gestirnir markið, en þar sem það var sjálfsmark skilaði það þeim ekki miklu, heldur þvert á móti. Þá kom fyrirgjöf utan af hægri kanti inn í markteiginn þar sem var nokkur þvaga, en boltinn fór af varnarmanni Fjarðabyggðar og í markið. Ekki var auðvelt að sjá hver það var sem stýrði boltanum inn fyrir línuna.

Heimamenn héldu áfram að pressa og eftir um klukkutíma leik fékk Styrmir Árnason góða sendingu inn í vítateig gestanna, sneri af sér varnarmann og átti gott skot sem fór hársbreidd yfir þverslána.

Fjarðabyggð gafst þó ekki alveg upp og varamaðurinn Hilmar Freyr Bjartþórsson slapp tvisvar inn fyrir, en féll við í fyrra skiptið, og í það seinna varði Hrafn frá honum en gestirnir vildu meina að togað hefði verið í hann. Kristinn Jakobsson, dómari, sá þó ekki ástæðu til að dæma vítaspyrnu á annað hvort atvikið.

Stuttu seinna fékk Kristinn Freyr Sigurðsson gott færi inni í vítateig en Rajkovic varði skot hans vel. Það var síðan tæplega korter eftir af leiknum þegar gestirnir fengu loksins vítaspyrnu, en þá var einum þeirra hrint inni í teignum. Á punktinn fór Jóhann Ragnar Benediktsson en Hrafn Davíðsson gerði sér lítið fyrir og varði frá honum spyrnuna.

Þetta virtist slökkva nokkuð í gestunum og þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma náði Pétur Georg Markan að bæta við marki fyrir heimamenn. Aron Sigurðarson átti þá sendingu inn á teiginn frá hægri kantinum og boltinn barst fram hjá öllum sem upp við markið stóðu, en endaði hjá Pétri sem kláraði færið vel.

Fjarðabyggð var þó ekki lengi að svara og Sigurjón Egilsson minnkaði muninn fyrir þá á seinustu mínútu venjulegs leiktíma þegar hann fékk háa sendingu inn í teiginn og skallaði boltann yfir Hrafn í markinu. Hvorugt liðið náði að bæta við marki eftir þetta og voru lokatölur leiksins því 2-1 fyrir Fjölni.

Vegna annara úrslita í dag er það ljóst að Fjölnir á ekki lengur möguleika á að komast upp í efstu deild, en þeir geta þó verið ánægðir með leikinn í dag, þar sem þeir spiluðu fínan fótbolta á köflum og áttu sigurinn sannarlega skilinn. Fjarðabyggð er hins vegar ennþá í bullandi fallhættu, enda sitja þeir ennþá í fallsæti. Þeir þurfa nauðsynlega á stigum að halda í seinustu tveimur leikjunum, en það gæti reynst þeim erfitt þar sem andstæðingar þeirra þar verða Leiknir og Þór, en bæði lið virðast vera hálfóstöðvandi þessa dagana og eru í baráttu um að komast upp.

Byrjunarlið Fjölnis: Hrafn Davíðsson - Illugi Þór Gunnarsson, Atli Már Þorbergsson, Gunnar Valur Gunnarsson, Einar Markús Einarsson (Aron Sigurðarson 70') - Guðmundur Karl Guðmundsson, Viðar Guðjónsson (Karl Freyr Sigurðsson 70'), Páll Dagbjartsson, Ágúst Þór Ágústsson, Pétur Georg Markan - Styrmir Árnason.
Ónotaðir varamenn: Ómar Hákonarson, Marinó Þór Jakobsson, Bergsveinn Ólafsson

Byrjunarlið Fjarðabyggðar:Srdjan Rajkovic - Sævar Örn Harðarson (Felix Hjálmarsson 84'), Andri Þór Magnússon, Andri Hjörvar Albertsson, Ingi Steinn Freysteinsson - Grétar Örn Ómarsson, Sandor Zoltan Forizs (Hilmar Freyr Bjartþórsson 46'), Fannar Árnason, Jóhann Ragnar Benediktsson, Sveinbjörn Jónasson - Aron Már Smárason (Sigurjón Egilsson 68')
Ónotaðir varamenn: Sveinn Fannar Sæmundsson, Pétur Kjartan Kristinsson

Dómari: Kristinn Jakobsson
Gul spjöld: Einar Markús Einarsson (Fjölni) 33' Sveinbjörn Jónasson (Fjarðabyggð) 93'
Slapp
banner
banner
banner