Inga Birna Friðjónsdóttir átti frábæran leik fyrir Stjörnuna í dag þegar liðið vann 3-2 sigur á Þór/KA. Inga Birna skoraði eitt mark, lagði upp eitt og fiskaði síðan vítaspyrnu sem varð að marki. Hún var að vonum sátt með sigurinn og hæstánægð með að hafa skorað sigurmarkið á 88. mínútu.
„Við erum mjög sáttar, þetta var markmiðið, að vinna. Það var ótrúlega ljúft að skora sigurmarkið, ég er svo glöð“ sagði Inga Birna hress eftir leikinn.
„Það var mjög gaman að skora markið og heyra að Breiðablik hafi tapað.“
Inga Birna á systur í liði Þórs/KA, Elvu Friðjónsdóttur, og segir hún að móðir þeirra eigi erfitt með að horfa á þegar þær spila. Hún bætir því einnig við að þær systurnar séu mjög góðar vinkonur, en að vísu ekki innan vallar.
„Ég er fegin að mamma er ennþá að lífi, hjartað slær ennþá í henni. Ég held að hún eigi rosalega erfitt með að horfa upp á þetta. En við erum rosalega góðar vinkonur, hún er búin að vera æfa með okkur, hún er flutt suður í háskólann. Þetta er bara rígur inni á vellinum og eintóm ást og gleði utan vallar,“ sagði Inga Birna.
























