Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 04. september 2010 17:44
Fótbolti.net
Umfjöllun: ÍH náði í mikilvægt stig í rokinu á Ásvöllum
Hrannar Karlsson og Sindri Már Kolbeinsson í leiknum í dag.
Hrannar Karlsson og Sindri Már Kolbeinsson í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
ÍH 0 - 0 Afturelding

ÍH steig stórt skref að því að halda sæti sínu í annarri deild karla þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Aftureldingu í leik liðanna á Ásvöllum í dag.

Þessi leikur fer seint í sögubækurnar fyrir að vera fjörugur en liðunum gekk afar illa að skapa sér opin marktækifæri. Sterkur hliðarvindur var á Ásvöllum og hann gerði leikmönnum erfitt fyrir.

Í fyrri hálfleik vantaði upp á síðustu sendinguna hjá liðunum, engin almennileg færi litu dagsins ljós og staðan var markalaus þegar gengið var til búningsherbergja.

Í síðari hálfleiknum var í raun það sama uppi á teningnum og færin voru afar fá.

Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban fékk besta færi Aftureldingar undir lok leiksins þegar hann fékk boltann í teignum eftir að varamaðurinn Alexander Aron Davorsson komst upp að endamörkum og sendi fyrir. Wentzel Steinarr átti síðan skot að marki en Jón Kolbeinn Guðjónsson varði vel í marki ÍH.

Á hinum enda vallarins náði Guðjón Frímann Þórunnarson að skora gegn sínum gömlu félögum. Ingi Fannar Eiríksson, dómari, var hins vegar búinn að dæma hendi á Guðjón og því stóð markið ekki við mikla gremju ÍH-manna.

Mörkin létu ekki sjá sig og lokatölur urðu 0-0 jafntefli í þessum rokleik.

ÍH er því fjórum stigum á undan Víði þegar tvær umferðir eru eftir og Hafnfirðingar geta gulltryggt sæti sitt í deildinni með hagstæðum úrslitum um næstu helgi. Afturelding siglir hins vegar lygnan sjó í áttunda sæti deildarinnar.
Slapp
banner
banner