Viðar Sigurjónsson, þjálfari Þórs/KA, var að vonum svekktur með að hafa ekkert fengið úr leik liðsins gegn Stjörnunni í Pepsi deild kvenna í dag. Stjarnan vann 3-2 sigur en Viðari finnst sem leikurinn hefði getað fallið hvoru megin sem var.
„Það er mjög súrt, klárlega. Við uppskárum ekki eins og við ætluðum að uppskera en svona er bara fótboltinn. Við áttum að klára þennan leik og á góðum degi hefðum við gert það. Við fáum allt of mörg færi til að reka smiðshöggið á þetta en ef maður nýtir ekki færin sín, þá er manni bara refsað. Stjarnan er bara allt of sterkt lið til að geta leyft sér að klúðra færunum sínum,“ sagði Viðar við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Í fótboltaleik eins og þessum er kannski ekkert sanngjarnt. Bæði lið eru að fá færi, Stjarnan á líka færi sem þær hefðu getað fengið fleiri mörk úr, nákvæmlega eins og við. Þetta er leikur þar sem jafntefli er kannski sanngjarnasta niðurstaðan, en það er ekki spurt að því. Þær skoruðu marki fleira en við og eru vel að því komnar.“
Þór/KA hefði getað farið upp fyrir Breiðablik og í annað sætið með því að sigra þennan leik, en þær eru enn stigi á eftir þeim í þriðja sætinu. Viðar er þó ánægður með að Blikar hafi tapað í dag þannig að þær náðu ekki að stinga af, en þær töpuðu óvænt 3-2 gegn FH.
„Það er að sjálfsögðu súrt en að móti kemur setja þau úrslit okkur á nákvæmlega sama stað og fyrir þennan leik. Við erum núna í tveggja leikja keppni og í nákvæmlega sömu stöðu og við vorum fyrir þennan leik því að Breiðablik tapaði, það er vatn á okkar myllu,“ sagði hann.
Viðar vildi ekki tjá sig hvort að hann myndi stýra liðinu lengur en út þetta tímabil, en viðtal við hann í heild sinni má sjá hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























