Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   lau 04. september 2010 18:09
Alexander Freyr Tamimi
Ólafur Þór Guðbjörnsson: Merkilega góður fótbolti
Kvenaboltinn
Ólafur Þór Guðbjörnsson.
Ólafur Þór Guðbjörnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar var að vonum hæstánægður með 3-2 sigur liðsins gegn Þór/KA í Pepsi deild kvenna í dag.

„Ég er mjög sáttur við þennan sigur í erfiðum aðstæðum. Það var merkilega góður fótbolti sem bæði lið spiluðu í dag. Við erum virkilega glöð og gaman að enda þetta svona í lokin. Við áttum það skilið, við vorum búin að fá fullt af færum og gaman að klára þetta svona,“ sagði Ólafur Þór við Fótbolta.net.

„Það var fúlt þegar við fengum á okkur víti í stöðunni 2-1 og þær jöfnuðu úr því. Þær voru ekki búnar að eiga mikið í seinni hálfleiknum og áttu lítið í leiknum utan við kannski fyrsta korterið. Eftir það vorum við mun sterkari og við fengum tvö til þrjú dauðafæri á markteig til að klára, og það var náttúrulega fúlt. En það var sætt fyrst að við kláruðum þetta í lokin.“

Viðtalið við Ólaf má sjá í heild sinni hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner