Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 04. september 2010 17:58
Matthías Freyr Matthíasson
Umfjöllun: Leiknir tryggði sér mikilvægan sigur á HK
Ögmundur Ólafsson var maður leiksins
Ögmundur Ólafsson var maður leiksins
Mynd: Þórir Þórisson
Mynd: Þórir Þórisson
Leiknir 1 - 0 HK
1-0 Kjartan Andri Baldvinsson ('51)

Leiknismenn tóku á móti HK á Ghetto-ground vellinum í Breiðholti í dag í veðri sem var vægast sagt hundleiðinlegt og var leikurinn heldur ekki uppá marga fiska.

Bæði lið þurfti nauðsynlega á sigri að halda, HK til þess að slíta sig frá fallbaráttunni og Leiknismenn til þess að vera ennþá í möguleikanum á sæti í Pepsí deild að ári.

Leiknismenn byrjuðu leikinn miklu betur og voru í heildina séð miklu betra liðið á vellinum og sást það greinilega að þeir ætluðu sér sigur. HK-menn aftur á móti voru með daprara móti meiri hluta leiksins og geta þeir þakkað markmanni sínum honum Ögmundi Ólafssyni fyrir það að hafa ekki tapað 4 - 5 núll.

Leiknismenn áttu nefnilega hátt í 8 dauðafæri í öllum leiknum en voru klaufa upp við markið sem og eins og áður sagði átti Ögmundur stórleik í marki HK og var hann besti maður vallarins.

En Leiknismenn nýttu sér yfirburðina strax í byrjun seinni hálfleiks þegar Aron Fuego Daníelsson geystist upp kantinn og sendi boltann fyrir mark HK, þar var Kjartan Andri Baldvinsson mættur á auðum sjó fyrir framan mark HK og átti ekki í nokkrum vandræðum með að setja boltann í markið.

Eftir þetta slökuðu Leiknismenn töluvert mikið á og bökkuðu fullmikið. HK menn komust því inn í leikinn og reyndu hvað þeir gátu til að sækja á þá en sóknartilburðir þeirra skiluðum engum árangri. Leiknismenn eins og fyrr segir lágu aftarlega og beittu skyndisóknum og voru nálægt því undir lok leiks að skora þegar Aron Fuego var kominn einn upp að marki HK en skaut framhjá.

Leiknum lauk því með 1 - 0 sigri Leiknis og eru þeir því komnir á topp 1.deildar ásamt Víkingi og eru þeir því enn í bílstjórasætinu um það hvort þeir komist upp um deild eða ekki.


Slapp
banner
banner