Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 04. september 2010 18:09
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Eiður Smári verður með Stoke gegn Aston Villa
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Tony Pulis, stjóri Stoke, hefur staðfest að Eiður Smári Guðjohnsen verði í leikmannahópi liðsins gegn Aston Villa mánudaginn 13.september næstkomandi.

Eiður Smári gekk til liðs við Stoke fyrr í vikunni en hann æfir nú stíft til að komast í gott form fyrir komandi leiki.

,,Þrátt fyrir að Eiður þurfi aðeins að vinna upp þá er hann frábær atvinnumaður," sagði Pulis.

,,Það veltur á því hversu mikið hann nær að æfa hvað við getum gert við hann og það ákveður hvort hann muni byrja gegn Villa eða hvort við munum setja hann á bekkinn."
Slapp
banner