KR 1-1 Fylkir
1-0 Katrín Ásbjörnsdóttir (’22)
1-1 Anna Björg Björnsdóttir (’61)
1-0 Katrín Ásbjörnsdóttir (’22)
1-1 Anna Björg Björnsdóttir (’61)
KR og Fylkir, liðin í 5. og 6.sæti Pepsi-deildarinnar, mættust í Frostaskjóli í dag. Bæði lið fengu stóra skelli í síðustu umferð og mátti því búast við þeim bandbrjáluðum til leiks í dag. Svo varð þó ekki og liðin skildu jöfn í heldur rólegum fótboltaleik.
Leikurinn var sérstakur á að horfa en hvorugt liðanna virtist ná að rífa sig upp úr fyrsta gír. Liðin voru að reyna að spila boltanum en gerðu það alltof hægt svo lítið kom út úr því. Á upphafsmínútum leiksins hefðu bæði lið getað skorað mörk ef leikmenn hefðu verið betur með á nótunum og nýtt sér slaka varnarvinnu andstæðinganna betur.
Um miðjan hálfleikinn náðu heimakonur forystunni. Fylkir hafði verið meira með boltann en KR beitti skyndisóknum og upp úr einni slíkri kom markið. Lára Hafliðadóttir vann boltann þá á miðjunni og kom honum á Hafrúnu Olgeirsdóttur. Hafrún stakk boltanum laglega á milli varnarmanna Fylkis og beint á Katrínu Ásbjörnsdóttir sem kláraði framhjá Björk í markinu.
Undir lok fyrri hálfleiks átti Fjóla Dröfn ágæta tilraun þegar hún lék á varnarmann KR en setti boltann svo rétt framhjá markinu.
KR-ingar gerðu breytingu á liði sínu í hálfleik en Rebekka Sverrisdóttir fór af velli þar sem hún var tæp vegna meiðsla og Guðlaug Sara Guðmundsdóttir tók stöðu hennar í hægri bakverði.
Freyja Viðarsdóttir átti fyrstu marktilraun síðari hálfleiksins en langskot hennar fór rétt yfir markið. Hinum megin á vellinum voru Anna Sigurðardóttir og Fjóla Dröfn komnar í álitlega stöðu gegn varnarmönnum KR en Anna skaut beint á Hrafnhildi markvörð þegar betri kostur hefði verið að renna boltanum á Fjólu sem hafði markið fyrir framan sig.
KR fékk gullið tækifæri til að auka forystuna á 60. mínútu. Rangstöðugildra Fylkis brást og Hafrún Olgeirsdóttir komst ein í gegn. Hafrún reyndi að lyfta boltanum yfir Björk í markinu en skotið var laust og Björk átti ekki í vandræðum með að verja.
KR-ingar geta nagað sig í handabökin yfir því að hafa ekki nýtt þetta færi því að Fylkir jafnaði metin strax í næstu sókn. Það var Anna Björg Björnsdóttir sem að skoraði markið eftir hornspyrnu. Lidija hafði skallað boltann í slánna og hann datt svo niður í teiginn þar sem Anna Björg var fyrst til að átta sig og kom boltanum í netið.
Bæði lið voru nálægt því að stela sigrinum undir lokin. Freyja Viðarsdóttir negldi í slánna utan af velli og Katrín Ásbjörnsdóttir átti skot rétt yfir Fylkismarkið auk þess sem að mark Kristínar Sverrisdóttur var dæmt af vegna rangstöðu.
Anna Sigurðardóttir gerði sig líklega hinum megin á vellinum. Fyrst komst hún á milli varnarmanns og markvarðar KR, stal af þeim boltanum en hitti ekki á markið úr þröngu færi. Skotið varð hinsvegar að stórhættulegri fyrirgjöf en boltinn fékk að rúlla framhjá KR markinu þar sem að enginn leikmaður Fylkis var nærri. Anna átti svo hörkuskot sem fór rétt framhjá markinu á lokamínútum leiksins.
Það má segja að jafntefli hafi í heildina verið sanngjörn úrslit. Liðin hafa oft leikið betur og ákveðið andleysi virtist ríkjandi í dag, sér í lagi hjá Árbæjarliðinu. Úrslitin breyta engu um stöðu mála í deildinni en liðin sigla áfram lygnan sjó í 5. og 6.sæti deildarinnar.
Lið KR: Hrafnhildur Agnarsdóttir (m), Freyja Viðarsdóttir, Rebekka Sverrisdóttir (Guðlaug Sara Guðmundsdóttir), Sonja Björk Jóhannsdóttir (Kristín Sverrisdóttir), Ólöf Gerður Ísberg, Lára Hafliðadóttir, Lilja Dögg Valþórsdóttir (f), Katrín Ásbjörnsdóttir, Mist Edvardsdóttir, Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir, Hafrún Olgeirsdóttir (Júlíana Einarsdóttir).
Ónotaðir varamenn: Selja Ósk Snorradóttir, Svava Björnsdóttir, Særún Rafnsdóttir, Svala Rakel Hjaltadóttir.
Lið Fylkis: Björk Björnsdóttir (m), Lidija Stojkanovic, Anna Björg Björnsdóttir, Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, Ragna Björg Einarsdóttir, Lovísa Sólveig Erlingsdóttir (Eyrún Rakel Agnarsdóttir), Anna Sigurðardóttir, Íris Dóra Snorradóttir (Rut Kristjánsdóttir), Laufey Björnsdóttir (f), Hanna María Jóhannsdóttir, Eva Núra Abrahamsdóttir.
Ónotaðir varamenn: Þórunn Sigurjónsdóttir, Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir, Kristrún Kristinsdóttir.



