Sigrún Ella Einarsdóttir var frábær í liði FH. Hér er hún í baráttu við Söru Björk Gunnarsdóttur í leiknum í dag.
Sigríður Guðmundsdóttir skoraði úr tvítekinni vítaspyrnu. Hér er hún í baráttu við Hlín Gunnlaugsdóttur.
FH 3-2 Breiðablik:
0-1 Sara Björk Gunnarsdóttir ('14)
1-1 Sigrún Ella Einarsdóttir ('25)
1-2 Jóna Kristín Hauksdóttir ('29)
2-2 Sigríður Guðmundsdóttir ('55, víti)
3-2 Liliana Martins ('61)
FH vann ótrúlegan sigur á Breiðablik í Pepsi-deild kvenna í dag en þrátt fyrir að lenda tvisvar undir kom liðið til baka og tók öll þrjú stig í hús, og opnaði þar með þann möguleika að Valur gæti lyft Íslandsmeistaratitli.
0-1 Sara Björk Gunnarsdóttir ('14)
1-1 Sigrún Ella Einarsdóttir ('25)
1-2 Jóna Kristín Hauksdóttir ('29)
2-2 Sigríður Guðmundsdóttir ('55, víti)
3-2 Liliana Martins ('61)
FH vann ótrúlegan sigur á Breiðablik í Pepsi-deild kvenna í dag en þrátt fyrir að lenda tvisvar undir kom liðið til baka og tók öll þrjú stig í hús, og opnaði þar með þann möguleika að Valur gæti lyft Íslandsmeistaratitli.
Það má sega að það hafi farið ónotatilfinning um áhorfendur í upphaf leiksins þegar stöðugt sírenuvæl á annan tug sjúkra- og slökkvibíla sem keyrðu fram hjá Kaplakrikanum á leið að alvarlegu bílslysi yfirgnæfði allt.
Leikmenn liðanna héldu þrátt fyrir það fullri einbeitingu og ljóst að bæði lið þurftu að berjast fyrir sínu. Breiðablik varð að vinna til að vera áfram með í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og FH þurfti sex stig úr síðustu þremur leikjunum til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni.
Bæði lið gerðu tilkall til vítaspyrnu á fyrri hluta leiks þegar boltinn fór í hönd andstæðinga en Guðrún Fema Ólafsdóttir dómari ákvað að dæma ekkert sem var líklega rétt enda hendin upp við líkama leikmannana.
Blikar fengu fínt færi á sjöundu mínútu þegar Fanndís Friðriksdóttir átti skot sem Birna Berg Haraldsdóttir varði í horn og á 14. mínútu kom Sara Björk Gunnarsdóttir Blikum yfir með skoti úr teignum eftir sendingu frá Hörpu Þorsteinsdóttur.
FH jafnaði svo metin á 25. mínútu en markið skoraði Sigrún Ella Einarsdóttir eftir að hafa fengið sendingu inn fyrir vörn Blika og klárað færið sitt vel.
Það entist ekki lengi því fimm mínútum síðar fékk Jóna Kristín Hauksdóttir sendingu frá hægri til vinstri í teignum og lyfti boltanum laglega upp á fjærhornið. Engu munaði að Blikar kæmust svo í 2-3 skömmu síðar eftir mikla pressu og misskilning milli varnarmanna og markmanns FH en þeim tókst þó að hreinsa í horn.
Á 43. mínútu skoraði Jóna Kristín Hauksdóttir svo aftur, nú með skalla eftir hornspyrnu Fanndísar en það mark var dæmt af og staðan því 1-2 fyrir Breiðablik í hálfleik.
FH-ingar gáfust ekkert upp þrátt fyrir að hafa lent tvívegis undir í leiknum og hver einasti leikmaður var kominn í leikinn til að berjast fyrir öllum stigunum. Hættulegust þeirra var þó Sigrún Ella sem átti sannkallaðan stjörnuleik í dag.
Hún fór illa með vörn Breiðabliks á 55. mínútu og var komin að því að skjóta á markið þegar Birna Kristjánsdóttir markvörður Blika braut á henni og vítaspyrna var dæmd auk þess sem Birna fékk að líta gula spjaldið.
Sigríður Guðmundsdóttir tók vítaspyrnuna en Birna varði frá henni. Guðrún dómari taldi hinsvegar að Birna hafi farið af línunni áður en spyrnt var og lét taka spyrnuna aftur. Í næstu tilraun skoraði Sigríður og staðan orðin 2-2.
Sigrún Ella lagið svo upp sigurmarkið á 61. mínútu. Hún kom þá upp hægra megin og sendi inn í teiginn á Liliana Martins sem fór framhjá varnarmanni ákveðin í að komast í skotstöðu og skoraði svo með góðu skoti. 3-2 fyrir FH sem hafði lent tvisvar undir.
Eftir þetta sóttu Blikar stíft að marki FH en sköpuðu sér engin færi að viti og án þeirra er erfitt að skora mörk. Eftir langan kafla af spennuþrungnum mínútum flautaði Guðrún Fema svo leikinn af við gríðarleg fagnaðarlæti Hafnfirðinganna.
Stigin þrjú gríðarlega mikilvæg fyrir FH sem á enn möguleika á að bjarga sæti sínu í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir. Blikar kvöddu um leið alla baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og því getur Valur fagnað titli í Mosfellsbænum eftir nokkrar mínútur.
FH: Birna Berg Haraldsdóttir, Berlind Arnardóttir, Ana Rita Andrade Gomes, Sigríður Guðmundsdóttir, Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, Joana Pavao (Halla Marinósdóttir '81), Liliana Martins, Silja Þórðardóttir, Margrét Sveinsdóttir (Guðrún Björg Eggertsdóttir '75), Sigrún Ella Einarsdóttir, Ástrós Lea Guðlaugsdóttir.
Breiðablik: Birna Kristjánsdóttir, Guðrún Erla Hilmarsdóttir, Anna Birna Þorvarðardóttir, Arna Ómarsdóttir Hildur Sif Hauksdóttir, Hlín Gunnlaugsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Jóna Kristín Hauksdóttir (Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir '77), Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir.
Áhorfendur: Um 200
Maður leiksins: Sigrún Ella Einarsdóttir, FH
Dómari: Guðrún Fema Ólafsdóttir
Aðstæður: Rok og þungt yfir en hitinn í kringum 15 stig.
Gul spjöld: Birna Kristjánsdóttir, Breiðablik ('54) , Joana Pavao, FH ('73), Sara Björk Gunnarsdóttir, Breiðablik ('91)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |



