Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 05. september 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Breiðablik og Fjarðabyggð/Leiknir bikarmeistarar í 3.flokki karla
Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Úrslitaleikirnir í bikarkeppni 3.flokks karla fóru fram í gær. Keppni þar er tvískipt en annars vegar er keppt á Suð-Vesturhorninu og síðan keppa liðin á Austurlandi og Norðurlandi í sérkeppni.

Breiðablik sigraði Hauka 3-0 í úrslitaleiknum á Suð-Vesturhorninu en leikurinn fór fram í roki á Ásvöllum.

Fjarabyggð/Leiknir sigraði Þór síðan 4-1 í úrslitaleik á Þórsvelli í keppninni á Norður og Austurlandi.

Hér til hliðar má sjá Árna Vilhjálmsson fyrirliða Blika taka við bikarnum á Ásvöllum í gær.
Slapp
banner
banner