Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 05. september 2010 08:17
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Michael Dawson frá keppni í sex til átta vikur
Michael Dawson, varnarmaður Tottenham, verður frá keppni næstu sex til átta vikurnar vegna meiðsla á hné.

Dawson var borinn af velli þegar England sigraði Búlgaríu 4-0 í undankeppni EM í fyrrakvöld.

Í upphafi var óttast að meiðslin væru af svipuðum toga og Mihael Owen lenti í árið 2006 en þá var hann frá keppni í heilt ár.

Rannsóknir í gær leiddu í ljós að meiðslin eru ekki jafnalvarleg en hins vegar er ljóst að Dawson verður frá keppni næstu vikurnar sem er áfall fyrir Tottenham.
Slapp
banner
banner