Þorlákur Árnason mun taka við kvennaliði Stjörnunnar eftir að þessu tímabili lýkur, en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í vikunni.
Þorlákur hefur verið viðloðandi meistaraflokk kvenna undanfarin misseri og meðal annars annast sérþjálfun. Aðalstarf hans fram að þessu var þó sem yfirþjálfari yngri flokkastarfs Stjörnunnar, en við því starfi tók Ásmundur Guðni Haraldsson, sem áður stýrði Gróttu.
Þorlákur hefur mikla reynslu af þjálfarastörfum og stýrði hann meðal annars liði Vals til sigurs í 1. deild karla árið 2002. Hann yfirgaf Val eftir tímabilið 2003 og tók við Fylki skömmu síðar. Þorlákur stýrði liðinu þar til í september 2005 og hefur starfað hjá Stjörnunni síðan þá. Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs kvenna, var gríðarlega ánægður með að hafa tryggt sér undirskrift Þorláks.
,,Við erum auðvitað gríðarlega sátt að hafa fengið Þorlák til liðs við okkur. Hann er mjög fær þjálfari með mikla reynslu. Við teljum hann ótvírætt rétta manninn til að ná þeim árangri sem að er stefnt," sagði Einar Páll við Fótbolta.net í dag.
Hann bætti því við að mikil ánægja ríkti með núverandi þjálfara liðsins, þá Ólaf Þór Guðbjörnsson og Elís Þór Rafnsson. Persónulegar skuldbindingar þeirra tveggja hafi komið í veg fyrir að þeir gætu stýrt liðinu lengra en út tímabilið.
,,Ólafur Þór og Elís munu að sjálfsögðu stýra liðinu í þeim tveimur leikjum sem eftir eru á tímabilinu. Þegar landslagið var skoðað með tilliti til þess hvaða hæfir þjálfarar gætu mögulega tekið við liðinu til lengri tíma, kom fljótt á daginn að vegna anna og annarra skuldbindinga væri það ekki möguleiki hvað þá varðaði. Þeir vou því aldrei valkostur í stöðunni," bætti Einar Páll við.
,,Þegar fyrir lá að Þorlákur gæti tekið við liðinu var niðurstaðan í raun sjálfgefin."
Stjarnan er í 4. sæti Pepsi deildarinnar, fjórum stigum á eftir Breiðablik sem er í öðru sætinu og þremur stigum á eftir Þór/KA í því þriðja. Liðið komst í úrslitaleik VISA bikars kvenna á þessu tímabili í fyrsta skiptið síðan 1993. Þeim leik töpuðu þær 1-0 gegn Val.



