Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 04. september 2010 19:55
Ólafur Ingi Guðmundsson
Umfjöllun: Frábær sigur ÍA á Gróttumönnum
Skagamenn fögnuðu vel góðum sigri á Gróttu í dag
Skagamenn fögnuðu vel góðum sigri á Gróttu í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórður var sáttur við sína leikmenn í leikslok
Þórður var sáttur við sína leikmenn í leikslok
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin skoraði og lagði upp tvö mörk
Gary Martin skoraði og lagði upp tvö mörk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Júlíusson skoraði þrennu og lagði upp fallegt mark
Andri Júlíusson skoraði þrennu og lagði upp fallegt mark
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 6-1 Grótta
1-0 Gary Martin (’18)
2-0 Andri Júlíusson (’21)
3-0 Andri Júlíusson (’31)
4-0 Hjörtur Júlíus Hjartarson (’41)
4-1 Daniel Howell (’43)
5-1 Ólafur Valur Valdimarsson (’64)
6-1 Andri Júlíusson (’68)

Skagamenn átt hreinan stórleik þegar þeir gjörsigruðu lið Gróttu 6-1 og gera nú atlögu að efri hluta deildarinnar í fyrsta sinn í tvö ár. Á sama tíma er staða Gróttumanna orðin mjög erfið í fallbaráttunni í dag og má ekkert útaf bregða til að þeir falli niður í 2. deild aðeins einu stigi frá fallsæti.

Fátt virtist þó benda til þess í byrjun leiks að sjö mörk yrðu skoruð í honum. Leikurinn var afar daufur og ekkert markvert gerðist fyrsta korterið í honum. Það var þó á 18. mínútu sem stíflan brast en þá átti Ragnar Þór Gunnarsson góða stungusendingu innfyrir vörn Gróttu þar sem Gary Martin var réttur maður á réttum stað og vippaði boltanum yfir Kristján Finnbogason í markinu.

Einungis þremur mínútum síðar komust skagamenn í 2-0 þegar Ólafur Valur Valdimarsson átti hornspyrnu og eftir klafs í teignum fékk Guðjón Heiðar Sveinsson boltann út við endamörk. Hann átti snilldarsendingu yfir á fjærstöngina þar sem Andri Júlíusson kom aðvífandi og hamraði boltann upp í þaknetið.

Gróttumenn virtust algjörlega vera slegnir útaf laginu eftir þennan góða kafla skagamanna og komust í raun aldrei í takt við leikinn eftir hann. Heimamenn gengu á lagið og héldu áfram að herja á laskað lið gestanna. Gary Martin átti góða rispu og lék á tvo varnarmenn en gott skot hans fór rétt framhjá stönginni. Á 31. mínútu leit svo þriðja markið dagsins ljós þegar Ólafur Valur Valdimarsson átti góða fyrirgjöf inn í vítateig þar sem Andri Júlíusson var einn og óvaldaður og skallaði boltann af öryggi í stöngina og inn.

Gestirnir gerðu hvað þeir gátu til að halda vörninni saman en þeir máttu sín lítils gegn gegndarlausum sóknarlotum ÍA. Á 41. mínútu kom svo fjórða markið þegar Andri Júlíusson átti frábæran sprett upp hægri kantinn, lék á einn varnarmann og komst inn í vítateig. Þar gaf hann góða sendingu á hinn háaldraða Hjört Júlíus Hjartarson sem gat ekki annað en skorað með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. Sýndi Hjörtur þar eina ferðina enn að öldruðum er margt til lista lagt.

Eftir að vera komnir í 4-0 fóru heimamenn að gefa eftir og Gróttumenn fóru að komast fram yfir miðju, sem hafði verið sjaldséð sjón í fyrri hálfleik. Á markamínútunni frægu eða þeirri 43 fékk Daniel Howell boltann á vinstri kantinn. Hann lék á varnarmann og átti lúmkst skot í nærhornið sem fór framhjá Páli Gísla Jónssyni og í netið. Klaufalega að verki staðið hjá vörninni þar.

Leikurinn fjaraði út í framhaldinu og staðan 4-1 fyrir heimamenn í leik þar sem munurinn hefði getað verið enn meiri ef ÍA hefði nýtt betur sumar sóknir sínar og menn verið yfirvegaðri í sínum sóknaraðgerðum.

Gróttumenn komu mun frískari til leiks í síðari hálfleik og leikurinn var mun jafnari framan af. Strax á þriðju mínútu hálfleiksins fékk Grótta aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Viggó Kristjánsson átti þar hörkuskot sem Páll Gísli Jónsson varði frábærlega í horn. Misstu gestirnir þar af kjörnu tækifæri til að komast inn í leikinn.

Á næstu mínútum áttu bæði lið álitlegar sóknir en þeim tókst ekki að brjóta varnirnar á bak aftur. Besta færið fékk Ragnar Leósson eftir góða sendingu frá Ólafi Val Valdimarssyni en skot hans var meistaralega varið af Kristjáni Finnbogasyni.

Á 64. mínútu leiksins kom svo hið endanlega rothögg fyrir Gróttumenn. Þá átti Ólafur Valur Valdimarsson skot lengst utan af vinstri kanti sem fór í boga yfir Kristján í markinu og í fjærhornið. Ákaflega vandræðalegt mark fyrir Kristján sem var illa staðsettur í markinu og varið vel fram að því.

Allur vindur var úr gestunum eftir fimmta markið og strax í næstu sókn átti Gary Martin góðan sprett upp vinstri kantinn og náði góðri sendingu á fjærstöngina. Þar var Aron Ýmir Pétursson vel staðsettur en fastur skalli hans fór rétt yfir þverslánna.

Stuttu síðar eða á 68. mínútu kom svo enn eitt markið þegar Gary Martin átti annan frábæran sprett upp kantinn. Fyrirgjöf hans lenti beint á glókollinum Andra Júlíussyni sem skallaði framhjá Kristjáni í markið. Andri Júlíusson þarna kominn með þrennu í leiknum.

Það sem eftir lifði leiks var fátt til frásagnar. Heimamenn virtust saddir eftir sex góð mörk og Gróttumenn virtust vilja að leikurinn væri flautaður af sem fyrst. Á lokamínútunni náðu skagamenn þó að sundurspila vörnina enn einu sinni þegar Eggert Kári Karlsson átti góða sendingu inn á Ragnar Þór Gunnarsson náði skoti sem Bjarni Jakob Gunnarsson náði að bjarga á línu. Ragnar Þór náði frákastinu og öðru skoti sem Bjarni Jakob náði að bjarga aftur á undraverðan hátt og koma þannig í veg fyrir sjöunda markið.

Skömmu síðar var leikurinn svo flautaður af af góðum dómara leiksins, hinum óviðjafnanlega og knáa Gunnari Jarli, betur þekktur sem Jarlinn af Breiðholtinu. 6-1 fyrir ÍA í besta leik heimamanna í lengri tíma.


Gamalkunnugt bros sást á andliti Þórðar Þórðarsonar, þjálfara ÍA, í dag. Liðið spilaði stærsta hluta leiksins frábærlega og hefði léttilega getað unnið leikinn stærra. Allt liðið stóð fyrir sínu en gaman var að sjá hve vel Lárus Orri Sigurðsson og Heimir Einarsson náðu saman sem miðvarðapar ÍA. Lárus Orri að spila sinn fyrsta opinbera leik í byrjunarliðinu fyrir félagið. Miðjan var svo traust þar sem Ragnar Þór Gunnarsson spilaði mjög vel sem og Ragnar Leósson. Ólafur Valur Valdimarsson skoraði svo eitt af mörkum tímabilsins. En að öðrum ólöstuðum voru Andri Júlíusson og Gary Martin menn leiksins. Andri skoraði þrennu og lagði upp mark og önnur færi. Garty Martin skoraði svo eitt mark og lagði upp tvö önnur mörk. Hann var ódrepandi allan leikinn og virkaði þindarlaus þegar hann elti boltann í sífellu allan völlinn.

Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Sigurði Helgasyni, nýjum þjálfara Gróttu, eftir sinn fyrsta leik með liðið. Þeir byrjuðu leikinn ekki illa en misstu gjörsamlega dampinn þegar fjögur mörk komu í fyrri hálfleik. Gróttumönnum til hróss gáfust þeir ekki upp, skoruðu mark og voru óheppnir að bæta ekki við fleiri mörkum í seinni hálfleik. Liðið reyndi sitt besta en var bara yfirspilað á köflum í leiknum. Kristján Finnbogason stóð fyrir sínu í markinu og Bjarni Jakob Gunnarsson var ágætur. Viggó Kristjánsson og Pétur Már Harðarson áttu góða kafla í leiknum og Sölvi Davíðsson átti svo fína spretti af og til.


Byrjunarlið ÍA: Páll Gísli Jónsson, Guðjón Heiðar Sveinsson, Heimir Einarsson, Lárus Orri Sigurðsson, Einar Logi Einarsson (’53 Aron Ýmir Pétursson), Hjörtur Júlíus Hjartarson, Ragnar Þór Gunnarsson, Andri Júlíusson (‘84 Eggert Kári Karlsson), Ragnar Leósson, Ólafur Valur Valdimarsson (’71 Andri Adolphsson), Gary Martin.
Ónotaðir varamenn: Árni Snær Ólafsson, Ragnar Már Viktorsson.

Byrjundarlið Gróttu: Kristján Finnbogason, Ásgrímur Sigurðsson, Knútur Rúnar Jónsson, Bjarni Jakob Gunnarsson, Sölvi Davíðsson, Magnús Bernharð Gíslason (’27 Daniel Howell), Hrafn Jónsson, Viggó Kristjánsson, Einar Bjarni Ómarsson (’46 Agnar Sigurjónsson), Guðmundur Bragi Árnason (’71 Hafsteinn Bjarnason), Pétur Már Harðarson.
Ónotaðir varamenn: Kjartan Ólafsson, Garðar Guðnason.

Aðstæður: Völlurinn frábær en frekar hvasst
Áhorfendur: 682
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson (góður)
Maður leiksins: Andri Júlíusson
Slapp
banner