Freyr Alexandersson, þjálfari Vals, var ánægður eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með 8-1 sigri á Aftureldingu í kvöld. FH sigraði Breiðablik fyrr í dag og því varð ljóst fyrir leikinn að Valur myndi tryggja sér titilinn með sigri á Aftureldingu.
,,Ég fæ símtal að FH sé komið 3-2 yfir á móti Breiðablik. Það varð allt vitlaust inni í klefa og það var ekki séns að við værum að fara að tapa stigi hérna," sagði Freyr við Fótbolta.net eftir leik.
,,Ég þurfti ekki að mótívera þær. Skítaglottið þegar ég labbaði inn í klefa sagði mér allt. Þær eru búnar að gráta svolítið yfir því að þurfa að taka alltaf við titlum á sunnudögum sem er fáránlegt. Þá spilum við þetta bara þannig að við klárum þetta á laugardegi löngu áður en mótið er búið."
Valur varð einnig bikarmeistari á dögunum og tímabilið hefur verið frábært hjá liðinu.
,,Þetta verður ekki toppað í titlum nema ég verði Evrópumeistari og það getur alveg gerst en við erum ekki búin að setja okkur það markmið ennþá."
Freyr sjálfur hefur náð góðum árangri með Val en eru önnur félög búin að hafa samband við hann?
,,Ég er sjóðheitur og síminn stoppar ekki. Það er ekkert mikið í gangi. Ég er einbeittur á Val og er samningsbundinn Val og nýt þess að starfa með þessum frábæru íþróttamönnum. Ég er alveg hreinskilinn með það að ég er ekki byrjaður að hugsa lengra en það."
Valur fær titilinn afhentan eftir leikinn gegn Grindavík þann 19.september næstkomandi.
,,Ég ætla að taka á móti titlinum fyrir framan fullt hús af Völsurum. Þetta verður stór dagur í sögu félagsins. Hundraðasti titilinn í sögu félagsins og ég vona að allir Valsarar hvort sem þeir heiti Þorgrímur Þráinsson eða Kalli á kústinum mæti og styðji sitt félag og fagni þessum stórkostlega áfanga sem félagið hefur náð að afreka."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























