,,Við gældum við það, og höfðum það bakvið eyrað. Já, eigum við ekki að segja það, þetta var markmiðið og það tókst," sagði Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur við Fótbolta.net eftir að hann hafði stýrt liðinu upp í 1. deild með sigri á Víði í dag.
,,Ég er gríðarlega sáttur og gríðarlega ánægður með þessa stráka. Þeir eru búnir að leggja mikið á sig. Það verður partý í kvöld."
,,Við skoruðum fjögur góð mörk og skoruðum fleiri en andstæðingarnir. Þetta var ekkert svakalega góður leikur en við erum miklu betra lið en þetta. Nú þurfum við bara að klára þetta tímabil með sæmd."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























