Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 04. september 2010 21:48
Fótbolti.net
Umfjöllun: Dramatík er Grindavík felldi Hauka
Kvenaboltinn
Sarah McFadden fór í sóknina og skoraði jöfnunarmarkið.
Sarah McFadden fór í sóknina og skoraði jöfnunarmarkið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sonný Lára Þrárinsdóttir var frábær í marki Hauka.
Sonný Lára Þrárinsdóttir var frábær í marki Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Ragnheiður Jónsdóttir
Shaneka Gordon fékk hvert dauðafærið á eftir öðru.
Shaneka Gordon fékk hvert dauðafærið á eftir öðru.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Grindavík 2-2 Haukar:
0-1 Sara Lyons Jordan ('43)
0-2 Megan Snell ('77)
1-2 Shaneka Gordon ('90)
2-2 Sarah McFadden ('91)
Rautt spjald:María Rós Arngrímsdóttir ('94)

Það var heldur betur dramatík í lokin þegar Grindavík náði 2-2 jafntefli gegn Haukum í Pepsi-deild kvenna í dag. Þegar flautað var til leiks í Grindavík var hífandi rok og blaut.

Grindavík byrjaði á móti vindinum en strax á fyrstu mínútu komst Shaneka Gordon ein í gegn en Sonný Lára Þráinsdóttir varði vel. Þetta átti þetta eftir að gerast ansi oft í leiknum. Á 3. mínútu komst Shaneka aftur í gegn en Sonný varði í horn og þegar 7 og hálf mínúta var liðin komst títt nefnda Shaneka í gegn en Sonný varði.

En á 11.mín var dæmd hendi á Sonný sem var utan teigs og Grindvíkingar framkvæmdu lélegt skot og Haukar komust upp úr því í skyndisókn. Þar komst Meagan Snell ein í gegn en Emma í marki Grindavíkur varði vel.

Á 16. mín fengu Haukar óbeina aukaspyrnu vegna þess að Sarah McFadden var sögð hafa gefið á markvörðinn sem tók boltann með hendi. Snell fékk boltann úr aukaspyrnunni en Emma varði vel í horn. Á 33.mínútu komst Shaneka í dauðafæri en skaut framhjá og á 35. mín átti Dagmar Þráinsdóttir fyrirgjöf og Shaneka skaut framhjá.

Á 41. mín skaut Shaneka að marki en skotið fór framhjá marki Hauka og tveimur mínútum síðar, á markamínútunni þeirri 43. skoruðu Haukar glæsilegt mark. Þar að verki Sara Lyons Jordan með skot fyrir utan teig og sveif það yfir markvörð Grindvíkinga. Ósanngjörn staða í hálfleik 0-1 en þetta snýst um að skora mörk og Haukar skoruðu eitt mark og voru yfir í hálfleik

Strax í upphafi síðari hálfleiks kom sókn hjá Grindavík og hver haldiði hafi skotið? Auðvita Shaneka og en var varið . Leikurinn róaðist aðeins en á 59 mínutu var Shaneka með einleik en skot hennar fór í varnarmann og í horn. Uppúr horninu varð ekkert. Grindavík átti svo góða sókn á 61. mínútu og eftir fyrirgjöf skaut Elínborg Ingvarsdóttir himinhátt yfir.

Á 68. mín komst Shaneka en og aftur í gegn en frábær markvarsla hjá Sonný of fjórum mínútum síðar átti Shaneka skot og það var varið.

En á 76. mínútu komust Haukar í 0-2 með flottu skoti frá Snell sem fór yfir Emmu í markinu . En á 81. mín urðu Haukar fyrir áfalli þegar Snell þarf að fara útaf meidd.

Svo tóku völdin æsilegar mínutur í lokin. Á 90. mínútu skoraði Shaneka mark fyrir Grindavík 1-2 . Haukar tóku miðju en Grindvíkingar náðu boltanum og brunuðu í sókn og Sarah MacFadden jafnaði leikinn. Svo gerðist atvik að línvörður veifaði horn á Hauka en dómarinn dæmdi markspyrnu ekki allir á eitt sáttir með það .

Uppúr markspyrnunni fór boltinn útaf við hliðarlínu eftir að leikmaður Grindavíkur sparkaði boltanum í Haukamann og útaf en Haukar fengu innkastið. Einhver orð fuku þar sem enduðu með þvi að María Rós Arngrímsdóttir fékk sitt annað spjald og þar með rautt. En þegar Haukar tóku innkastið flautaði dómarinn af.

Þetta þýðir að fallbárattan hartðnar enn og er falldraugurinn ekki farinn úr Grindavík. En það eru tvær umferðir eftir og allt getur gerst. Haukar hefðu þurft öll stigin í dag en fyrst það tókst ekki eru þær nú fallnar og enda mótið í tíunda og neðsta sæti óháð úrslitum í síðustu tveimur umferðunum.

Hjá Grindavík var Sarah Macfadden mjög góð og færði þjalfarinn hana framar á síðustu mínútunum og það skilaði allavega stigi. Svo má ekki gleyma Shaneku Gordon Fékk 11 færi en skoraði úr einu færi sem var lélegasta færið hjá henni. Hjá Haukum var Sonný Lára Þráinsdóttir frábær og Meagan Leigh Snell þegar hennar naut við. Klárlega hjálpaði það Grindavík að hún þurfti að fara útaf.
Slapp
banner