Heimild: BBC
Roberto Di Matteo knattspyrnustjóri WBA tilkynnti í gær að Luke Moore megi fara frá félaginu á láni en hann komst ekki í 25 manna leikmannahóp hans fyrir ensku úrvalsdeildina.
Moore sem er fyrrverandi framherji Aston Villa má því ekki spila með liðinu í deildinni fyrr en í janúar svo hann verður að leita annað ætli hann sér að spila.
,,Í lok síðustu leiktíðar var hann ekki eins mikið með. Ég varð að taka ákvörðun," sagði Di Matteo.
,,Auðvitað var hann ekki ánægður með það. Staðreyndin er að hann getur ekki spilað með okkur fyrr en í janúar sem þýðir að það væri betra fyrir hann að fara út á láni og spila fótbolta heldur en að æfa bara."
Moore kom til WBA frá Aston Villa á 3 milljónir punda árið 2008 og hefur síðan þá skorað 5 mörk í 33 leikjum.



