Heimild: AP
Brasilíska félagið Fluminense reynir nú allt hvað það getur að fá að halda Maracana leikvangnum fræga opnum þrátt fyrir að endurbætur séu hafnar á honum fyrir Heimsmeistaramótið árið 2014 sem fer fram í Brasilíu.
Framkvæmdir hófust við völlinn fyrir tveimur vikum síðan og síðasti deildarleikurinn á vellinum fræga á að fara fram í dag.
Fluminense hefur hinsvegar fengið lögmenn sér í lið og vill halda leikvangnum opnum lengur, enda telji þeir að hægt sé að spila á honum þó svo framkvæmdir standi yfir á ákveðnum hlutum hans.
Verið er að fjarlægja hluta úr stúkunni og því hafa lið spilað á leikvangnum fyrir framan færri áhorfendur en ella.
Mario Bittencourt lögmaður Flumiense sagði við vefinn GloboEsporte að félagið muni biðja áfrýjunardómstól vegna íþróttamála að taka málið upp en ekki stendur til að opna leikvanginn fyrr en árið 2013, fyrir álfukeppnina.



