Heimild: AP
Laurent Blanc landsliðsþjálfari Frakka hefur kallað Jimmy Briand framherja Lyon inn í leikmannahóp sinn sem mætir Bosníu/Herzegóvínu í undankeppni EM 2012 á þriðjudag.
Blanc kallar Briand inn í hópinn vegna meiðsla Loic Remy, Louis Saha og Uillaume Hoarau sem misa allir af leiknum.
Remy meiddist á nára og var tekinn af velli á 34 .mínútu í óvæntu 1-0 tapi gegn Hvíta Rússlandi á föstudag en Saha sem kom inná sem varamaður í seinni hálfleik entist bara í 10 mínútur áður en hann haltraði af velli, tognaður á kálfa.
Franska knattspyrnusambandið sagði svo í gær að Hoarau hafi meiðst á öxl eftir að hafa fallið illa í leiknum gegn Hvíta Rússlandi.
Bosnía Herzegovina er á toppi riðilsins eftir einn leik en þeir lögðu Lúxemburg 3-0 á útivelli á föstudag.



