Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 05. september 2010 13:45
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Redknapp: Dawson er í rusli
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham segir að Michael Dawson sé gersamlega miður sín eftir að hafa meiðst illa í 4-0 sigri Englands á Búlgaríu.

Dawson verður frá í töluvert langan tíma og segist Redknapp þakka Guði fyrir að hafa fengið William Gallas á frjálsri sölu.

„Strákurinn er algerlega í rusli. Þetta er hrikalegt áfall fyrir hann sem og félagið,“ sagði Redknapp.

„Mig langar að segja eitthvað jákvætt um þetta en það er fátt annað sem ég get sagt heldur en að við héldum fyrst að þetta væri verra og að hann yrði frá út tímabilið.“

„Við vitum ekki hvort mun taka lengri tíma að jafna sig, ökklinn eða hnéð, en við erum að tala um mánuði, ekki vikur.“

„Ég finn mikið til með honum, að þetta hafi gerst þegar hann var að vinna sér inn sæti í byrjunarliði enska landsliðsins. Og hvað Tottenham varðar, þá er hann hjarta og sál þessa félags.“

„Ég þakka bara Guði fyrir að við fengum William Gallas á frjálsri sölu. Það er jafnvel enn meiri fengur undir þessum kringumstæðum.“

Slapp
banner
banner