Heimild: Sky
David Sullivan eigandi West Ham segir að knattpsyrnustjórinn Avram Grant sé ekki undir neinni pressu þó að liðið hafi tapað fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu. Grant tók við stjórastöðunni af Gianfranco Zola í sumar en hefur átt erfitt uppdráttar.
Sullivan segir þó að hann geri sér grein fyrir því að Grant taki við erfiðu búi og þarf hann ekki að hafa áhyggjur af starfi sínu enn sem komið er.
„Það er algjört bull að ég hafi sent Avram einhver viðvörunarskilaboð. Ég ætlast bara til að liðið bæti sig. Þetta er enginn heimsendir,“ sagði hann.
„Það er ekki hægt að dæma liðið eftir þrjá leiki, það er allt of snemmt. Þegar þú ert að byggja eitthvað upp tekur það tíma og það hafa miklar breytingar átt sér stað.“
„Næstu þrír leikir verða virkilega erfiðir. Chelsea heima, Stoke sem eru mjög góðir á útivelli og síðan Tottenham heima. Þrír erfiðir leikir og síðan byrjar tímabilið fyrir alvöru þegar við mætum Fulham 2. október. En vonandi getum við komið fólki á óvart gegn Chelsea, Stoke og Tottenham.“
„Avram fékk mjög óstöðugt lið í hendurnar. Næsta árið mun hann snúa blaðinu við og úrslitin munu koma smám saman. Hann er mjög bjartsýnn fyrir hönd félagsins. Hann myndi gjarna vilja hafa 30 til 40 milljónir punda til leikmannakaupa en hvaða stjóri myndi ekki vilja það?“
„Ég hef fulla trú á honum og fulla trú á liðinu.“



