Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 05. september 2010 14:31
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Capello segir gagnrýnendum að líta í eigin barm
Fabio Capello landsliðsþjálfari Englendinga hefur skotið á þá fjölmiðlamenn sem gagnrýndu hann eftir slakt gengi Englands á HM 2010 í Suður Afríku. Þessi reyndi Ítali nýtti tækifærið eftir 4-0 sigur liðsins á Búlgörum til að segja sumum þeirra sem gagnrýndu hann að líta í eigin barm.

,,Þegar þú rakar þig á morgnana þarftu að horfa í spegilinn og spyrja þig hvort að það sem þú skrifaðir um þennan mann hafi verið rétt eða ekki," sagði Capello.

,,Ég get ekki breytt því sem fólk skrifar og ég skil að það þarf að vinna sína vinnu. En ég lít á sjálfan mig og er sannfærður um að ég hafi komið með eitthvað gott í þetta lið."

,,Ég reyni að sinna mínu starfi eins vel og ég get en stundum geri ég mistök. Þegar ég hóf feril minn sem leikmaður varð ég oft fyrir alvarlegum meiðslum. Þegar ég var 20 voru dagblöðin búin að segja að ferli mínum væri lokið. En ég lagði hart að mér og var sterkur. Það sama á við í þetta skipti."

Slapp
banner
banner