Heimild: Sky
James Milner segir að Wayne Rooney sé algerlega einbeittur að því að spila fyrir enska landsliðið þrátt fyrir að mikið sé í gangi í einkalífi þessa leikmanns Manchester United.
Rooney mun ferðast með enska landsliðinu til Sviss þar sem þeir mæta heimamönnum í undankeppni EM 2012. Þessi öflugi framherji komst í fréttirnar um helgina þegar vændiskona greindi frá því að hún hefði margoft sofið með leikmanninum á meðan eiginkona hans var ólétt.
Þegar Milner sat fyrir svörum fjölmiðla var hann spurður út í Rooney en hann ítrekar að leikmaðurinn sé einbeittur að því að eiga annan góðan leik fyrir liðið, en Rooney var frábær í 4-0 sigri Englands gegn Búlgaríu.
„Hann var með alla æfinguna, við erum hérna til að spila fótbolta og það munum við gera,“ sagði Milner.
„Mér finnst hann vera einn af bestu leikmönnum liðsins líkt og hann sýndi um daginn. Hann er heimsklassa leikmaður og við viljum stilla upp okkar sterkasta liði.“
„Hann er frábær leikmaður, hann sýndi það á föstudag og var með alla æfinguna í dag, þið þurfið að spyrja hann ef þið hafið fleiri spurningar.“
„Við hinir þurfum bara að ganga úr skugga um að þetta hafi engin áhrif á okkur. Það er alltaf eitthvað að birtast í fjölmiðlum, góðir hlutir eða slæmir hlutir, það er bara hluti af fótboltanum.“



