Heimild: Soccernet
Spænski landsliðsmaðurinn Xavi telur að Barcelona sé ennþá líklegasta liðið til að verða spænskur meistari þó svo að erkifjendurnir í Real Madrid hafi styrkt lið sitt.
Börsungar vörðu titilinn á seinasta tímabili þrátt fyrir að leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, Kaka, Xabi Alonso og Karim Benzema hafi gengið til liðs við Madrídinga. Á þessu tímabili fengu þeir hinn sigursæla Jose Mourinho til að taka við liðinu og fjárfesti hann í leikmönnum á borð við Angel Di Maria og Mesut Özil.
Þrátt fyrir allt það telur Xavi samt sem áður að Katalóníurisarnir geti hampað spænska meistaratitlinum enn eitt árið.
„Barcelona er líklegasta liðið til að vinna titilinn vegna þess að við erum núverandi meistarar. Madrid hafa eytt miklum pening undanfarin ár og finnst þeir verða að vinna titilinn. En mér finnst þægilegt að fólk telji okkur vera sigurstranglegasta, það er áskorun fyrir okkur,“ sagði Xavi.
„Leikmannahópur okkar er ekki stór en það er mikil samkeppni og allir eru til í slaginn. Sum lið eru með 25 eða 26 leikmenn þar sem fjórir eða fimm eru aldrei inni í myndinni. Við erum líka með unglingastarf sem er að skila stórkostlegum leikmönnum sem geta stigið upp í aðalliðið hvenær sem er.“
„Við erum með sterkt lið, það er vel samkeppnishæft og ég held að það séu fleiri kostir við það að hafa smáan hóp heldur en ókostir.“




