Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 05. september 2010 16:12
Alexander Freyr Tamimi
Pennant hlakkar mikið til að spila með Eiði Smára
Jermaine Pennant segir að tilhugsunin um að spila við hlið Eiðs Smára Guðjohnsen hafi átt stóran þátt í því að hann ákvað að ganga til liðs við Stoke á Englandi.

Pennant og Eiður Smári gengu báðir til liðs við Stoke á seinasta degi félagsskiptagluggans og hlakkar þann fyrrnefnda að spila við hlið Íslendingsins.

,,Þegar ég sá að Eiður væri floginn til Stoke fannst mér það vera frábær kaup. En ég vissi það ekki þá að ég væri á leið þangað líka," sagði Pennant.

,,Svo fékk ég símtal frá umboðsmanni mínum og þetta var mjög freistandi."
Slapp
banner
banner