Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 05. september 2010 17:45
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sporting Life 
Aston Villa stefnir á að ráða Houllier innan tveggja sólarhringa
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa vonast til að ráða Gerrard Houllier sem knattspyrnustjóra liðsins innan tveggja sólarhringa.

Houllier mun velta því fyrir sér um helgina hvort hann vilji snúa aftur í ensku úrvalsdeildina eftir sex ára fjarveru. Hann er talinn vera sá líklegasti til að taka við starfinu en hann ræddi við fulltrúa Aston Villa í seinustu viku, ásamt þeim Alan Curbishley fyrrum stjóra West Ham og Kevin MacDonald bráðabirgðastjóra liðsins.

Houllier vildi lítið tjá sig um framtíð sína í gær þegar hann ar spurður út í starfið hjá Villa, en hann er sem stendur tæknilegur ráðgjafi franska landsliðsins. Talið er að hann vilji breyta til eftir slakt gengi liðsins á heimsmeistarmaótinu í Suður Afríku.
Slapp
banner
banner
banner