Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 05. september 2010 15:52
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sporting Life 
De Jong sér ekki eftir karatesparkinu fræga
Hollendingurinn Nigel De Jong segist ekki sjá eftir karatesparki sínu í bringu Xabi Alonso í úrslitaleiknum gegn Spáni á heimsmeistaramótinu í Suður Afríku seinastliðið sumar.

Þessi miðjumaður Manchester City stökk upp með löppina á undan sér og beint í Alonso sem lá óvígur eftir. Dómari leiksins, Howard Webb, gaf De Jong einungis gula spjaldið en viðurkenndi síðar að þetta brot hefði verðskuldað rautt spjald.

,,Ég sé ekki eftir neinu. Ég ætlaði aldrei að meiða hann," sagði De Jong við Daily Mirror.

,,Eftir svona frábært heimsmeistaramót fannst mér ég snúa aftur í búningsklefa Manchester City sem allt annar leikmaður. Þannig leið mér."

,,Ég hafði nýlokið við að spila úrslitaleik HM og það breytti mér. Strákarnir hjá City sögðu að frammistaða Hollands á mótinu hafi komið þeim verulega á óvart og það var góð tilfinning."

Slapp
banner