Heimild: Heimasíða ÍA
Enski framherjinn Gary Martin hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við ÍA og því er ljóst að hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni næsta sumar.
Gary kom til ÍA frá Middlesbrough í júlí síðastliðnum en hann hefur skorað fimm mörk í sex byrjunarliðsleikjum síðan þá.
Síðast skoraði Gary í 6-1 sigri ÍA á Gróttu í gær en eftir leikinn gerði hann nýjan eins árs samning.
,,Í viðræðunum við Gary síðustu daga hefur verið ánægjulegt að finna að hann er ánægður með móttökurnar á Akranesi og aðbúnað," segir á heimasíðu ÍA.
,,Ekki síður skiptir máli að hann er einnig ánægður með þjálfara liðsins og þann góða anda sem er í leikmannahópnum. Þó svo að leikmannahópurinn sé að uppistöðu til ungur, þá telur Gary að í honum búi lið sem eigi að ná árangri og þess vegna telur hann að áframhaldandi vist á Akranesi góðan kost til að þroskast sjálfur sem leikmaður."
,,Þetta eru góðar fréttir og ánægjulegt viðhorf í garð leikmanna, þjálfara og þeirra sem vinna að því að móta öflugt Skagalið sem leiki í efstu deild."


