Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
banner
   sun 05. september 2010 16:22
Hafliði Breiðfjörð
Theódór: Leiðinlegt að leikurinn skuli ráðast á svona atriði
Kvenaboltinn
Theódór fagnar með  Mist Rúnarsdóttur aðstoðarmanni sínum  á dögunum er liðið tryggði sér sæti í Pepsi deildinni.
Theódór fagnar með Mist Rúnarsdóttur aðstoðarmanni sínum á dögunum er liðið tryggði sér sæti í Pepsi deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við ætluðum okkur sigur hérna og ætluðum að klára síðasta markmiðið okkar sem var að vinna dolluna í 1. deild en það hafðist ekki núna," sagði Theódór Sveinjónsson þjálfari kvennaliðs Þróttar við Fótbolta.net eftir 3-1 tap gegn ÍBV í úrslitaleik 1. deildar.

,,Heilt yfir fannst mér við betra liðið og spiluðum fínan bolta en sigurinn datt þeirra megin núna. Það var lítið stress í okkur. Við spiluðum af sjálfstrausti og vissum alveg hvar þær væru sterkar og hverjar ætti að loka á. Við gerðum það mjög vel enda voru þær orðnar mjög pirraðar en svo fer þetta bara svona."

ÍBV komst í 2-1 með marki sem kom uppúr óbeinni aukaspyrnu en áður en boltanum var spyrnt á markið var hann hreyfður lítillega úr stað og Theódór brást reiður við.

,,Hann dæmir óbeina aukaspyrnu úti á velli og það er stigið ofan á boltann. Boltinn fer aldrei heilan hring og það er skotið og skorað. Þetta er mjög leiðinlegt að leikurinn skuli ráðast á svona atriði. Þrátt fyrir að þetta séu góðir dómarar þá gera þeir mistök eins og leikmenn og þjálfarar."

Nánar er rætt við Theódór í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner
banner
banner