Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 05. september 2010 17:16
Magnús Már Einarsson
Tonny spilaði með Úganda - Siggi skoraði
Tonny Mawejje.
Tonny Mawejje.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tonny Mawejje, leikmaður ÍBV, lék með Úganda þegar liðið sigraði Angóla 3-0 í gær.

Tonny þótti standa sig mjög vel en hann spilaði allan leikinn.

Leikurinn var sá fyrsti í riðlakeppni Afríkukeppninnar en auk þessara liða eru Kenýa og Gínea Bissau með þeim í riðli.

Andrew Mwesigwa eða Siggi, fyrrum leikmaður ÍBV, lék einnig með Úganda í gær og hann skoraði annað mark liðsins.

Smelltu hér til að sjá mörkin úr leiknum
Slapp
banner