Heimild: Goal
Emmanuel Adebayor, framherji Manchester City, er ekki í miklu uppáhaldi hjá mörgum stuðningsmönnum hjá sínu fyrrum félagi Arsenal.
Adebayor mun ekki auka vinsældir sínar hjá Arsenal með nýjustu ummælum sínum en hann segir að Manchester City sé stærra félag en Arsenal.
,,Já, það lítur út fyrir það," sagði Adebayor aðspurður hvort Manchester City sé stærra félag en Arsenal.
,,Með þessum frábæru nýju leikmönnum þá eigum við ótrúlega möguleika á að komast í sögubækurnar."
,,Þetta snýst samt allt um úrslit. Ef við getum unnið tíu leiki í röð þá mun fólk tala um að Manchester City sé stærra félag en Arsenal."

