Heimild: Heimasíða KSÍ
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Tékkum í dag kl. 15:00 að íslenskum tíma. Leikurinn er síðasti leikur liðsins í undankeppni fyrir EM 2011.
Með 2-0 sigri tryggir U21 árs landsliðið sér sigur í riðlinum og þar með sæti í umspili um sæti á EM í Danmörku á næsta ári.
Með jafntefli er einnig nokkuð ljóst að Ísland mun fara áfram í umspilið þar sem fjögur lið með bestan árangur í öðru sæti fara einnig áfram.
Ef strákarnir tapa í dag veltur það hins vegar á úrslitum annarra leikja hvort liðið komist í umspilið.
Hér að neðan má sjá byrjunarliðið en leikurinn í dag verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Byrjunarliðið:
Haraldur Björnsson
Jón Guðni Fjóluson
Hólmar Örn Eyjólfsson
Kristinn Jónsson
Guðmundur Kristjánsson
Andrés Már Jóhannesson
Skúli Jón Friðgeirsson
Bjarni Þór Viðarsson
Alfreð Finnbogason
Arnór Smárason
Þórarinn Ingi Valdimarsson
Varamenn:
Arnar Darri Pétursson (M)
Almarr Ormarsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Elfar Freyr Helgason
Guðmundur Reynir Gunnarsson
Kristinn Steindórsson
Björn Bergmann Sigurðarson