FH 5 - 3 Keflavík
1-0 Atli Viðar Björnsson ('5)
1-1 Haukur Ingi Guðnason ('9)
1-2 Bjarni Hólm Aðalsteinsson ('17)
2-2 Björn Daníel Sverrrisson ('26)
3-2 Atli Viðar Björnsson ('44)
3-3 Haukur Ingi Guðnason ('52)
4-3 Björn Daníel Sverrisson ('64)
5-3 Matthías Villhjálmsson ('74,víti)
1-0 Atli Viðar Björnsson ('5)
1-1 Haukur Ingi Guðnason ('9)
1-2 Bjarni Hólm Aðalsteinsson ('17)
2-2 Björn Daníel Sverrrisson ('26)
3-2 Atli Viðar Björnsson ('44)
3-3 Haukur Ingi Guðnason ('52)
4-3 Björn Daníel Sverrisson ('64)
5-3 Matthías Villhjálmsson ('74,víti)
90.mín: Leiknum er lokið með góðum sigri FH. Viðtöl og umfjöllun koma innan skamms.
91.mín: Leiknum er við það að ljúka, einungis uppbótartími eftir og held að það sé deginum ljósara að FH vinni þennan leik.
85.mín: FH gerir breytingu. Atli Viðar Björnsson fer af velli og Gunnar Kristjánsson kemur í hans stað.
79.mín: Keflvíkingar gera sínu þriðju skiptingu. Guðmundur Steinarsson fer af velli og Magnús Þórir Matthíasson kemur inná.
78.mín: Það virðist sem svo að Keflvíkingar séu hættir. Allavegana stjórna FH-ingar leiknum frá a-ö eins og staðan er núna.
74.mín:MARK!!!!!!!!!!!!! Matthías Vilhjálmsson skorar örugglega úr vítaspyrnunni sem dæmd var eftir að Guðjón Árni hafði handleikið knettinn innan teigs.
74.mín:Vítaspyrna.
72.mín: Atli Guðnason með skot úr teignum sem Lasse varði vel.
70.mín: Haukur Ingi Guðnason kom af velli á 62 mínútu og Magnús Sverrir Þorsteinsson kom inná í hans stað.
68.mín: Jóhann Birnir Guðmundsson kemur inn á í staðinn fyrir Andra Stein Birgisson.
67.mín: Það eru 1858 áhorfendur á vellinum í dag.
64. mín: MARK!!!!!!Björn Daníel Sverrisson skorar fjórða mark FH. Hann fékk sendingu inn í teiginn og var mjög rólegur og yfirvegaður þegar hann setti boltann framhjá Lasse Jörgensen í marki Keflavíkur.
57.mín: Keflvíkingar eru með hrikalega góða tölfræði í þessum leik. Eru búnir að eiga 3 skot á markið og skorað úr þeim öllum.
52.mín:MARK!!!!!!!!!!!!!! Haukur Ingi Guðnason skorar og jafnar leikinn, Haukur fékk fyrirgjöf inn í teiginn og náði skoti einn og óvaldaður og beint í markið
50.mín: Seinni hálfleikurinn fer rólega af stað.
48.mín: Andri Steinn Birgisson fær gult spjald.
46.mín: Seinni hálfleikurinn er hafinn hérna í Krikanum. Vonandi að skemmtunin haldi áfram frá því sem horfið var.
45.mín: Kominn hálfleikur og forysta FH er verðskulduð
44.mín:MARK!!!!!!!!!!!!!!! Atli Viðar Björnsson skorar eftir að Matthías Villhjálmsson hafði skallað boltann frá miðju og yfir öftustu varnarmenn Keflvíkinga sem voru framarlega. Atli Viðar náði boltanum og þaut sem vindurinn upp að marki Keflvíkinga og skoraði örugglega.
41.mín: Virkilega góð sókn hjá FH þar sem Atli Guðnason sendi síðan boltann fyrir markið en skallinn frá Hirti Loga var slakur.
36.mín: Pétur Viðarsson fær gult spjald.
34.mín: Hörkuskot frá Hirti Loga sem Lasse varði vel.
32.mín: Bjarni Hólm Aðalsteinsson fær gult fyrir kjaftbrúk/mótmæli
30.mín: Þetta er bráðfjörugur og virkilega skemmtilegur leikur sem er í gangi hérna í Krikanum. Bæði lið eru að spila sóknarbolta á kostnað varnarvinnu. FH eru þó búnir að vera betri.
26.mín:MARK!!!!!!!!!!!! Björn Daníel Sverrisson jafnar metin með skalla í fjærhornið eftir sendingu frá Atla Guðnasyni
23.mín: Þetta stefnir allt í stórleik það er nokkuð ljóst.
17.mín:MARK!!!!!!!!!!!!!!!!! Bjarni Hólm Aðalsteinsson skorar eftir að Guðmundur Steinarsson hafði tekið aukaspyrnu sem fór inn í teiginn og FH náði ekki að hreinsa frá. Keflavík komið yfir
16.mín: Eftir einstefnu FH fyrstu 9 mínúturnar að þá hefur leikurinn róast töluvert og orðið jafnari.
11.mín: Ég var að fara að skrifa það að FH væru miklu betri og Keflvíkingar kæmust ekkert áfram í leiknum þegar skelfileg varnarmistök hjá Tommy komst Haukur Ingi í boltann, einn á móti Gunnleifi og setti hann laglega framhjá honum.
9.mín:MARK!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Haukur Ingi skorar eftir mistök hjá Tommy Nielsen.
5.mín:MARK!!!!!!! Atli Viðar skorar með föstu skoti úr teignum eftir sendingu frá Birni Daníel
3.mín: FH byrjar leikinn betur og eru búnir að pressa stíft á Keflvíkingana sem liggja mjög aftarlega.
1.mín: Gunnar Jarl er búinn að flauta til leiks. Þetta verður eitthvað.
16:50: Fyrri leikur liðanna í sumar fór 1-1. Keflvíkingar hafa að litlu að keppa í dag nema það að enda mótið á sem besta hátt. FH hefur aftur á móti að öllu að keppa, með sigri í dag að þá eru þeir enn í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en þeir tapa eða gera jafntefli og önnur úrslit verða óhagstæð, .þ.e. að Blikar og ÍBV vinni sína leiki að þá eru FH úr leik.
16:45: Byrjunarlið FH helst óbreytt frá góðum sigri þeirra á Stjörnunni í síðustu umferð. Hjá Keflavík er ein breyting frá sigri þeirra á Valsmönnum. Ómar Jóhannsson markmaður þeirra er ekki í hóp og Lasse Jörgensen kemur í markið.
16:40: Hinn eiturhressi Leiknismaður Gunnar Jarl Jónsson sem er búinn að eiga stórgott tímabil í sumar verður dómari í þessum leik. Honum til aðstoðar verða þeir Ólafur Ingvar Guðfinnsson, Frosti Viðar Gunnarsson.
Lið FH: Gunnleifur Gunnleifsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Villhjálmsson, Atli Guðnason, Atli Viðar Björnsson, Hákon Atli Hallfreðsson, Ólafur Páll Snorrason, Hjörtur Logi Valgarðsson
Varamenn: Gunnar Sigurðsson, Gunnar Kristjánsson, Gunnar Már Guðmundsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Torger Motland, Guðmundur Sævarsson, Helgi Valur Pálsson
Lið Keflavíkur: Lasse Jörgensen, Alen Sutje, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Guðmundur Steinarsson, Haukur Ingi Guðnason, Brynjar Örn Guðmundsson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Hörður Sveinsson.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Einar Orri Einarsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic, Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þórir Matthíasson.
16:30: Góðan dag og verið innilega velkomin í beina textalýsingu frá leik FH & Keflavíkur í 21 umferð Pepsí deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og ég verð hér í massa stuði og fylgist með leiknum fyrir ykkur.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |