Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   lau 25. september 2010 17:46
Magnús Már Einarsson
Umfjöllun: Eyjamenn stóðust ekki síðasta prófið
Eyjamenn voru svekktir eftir leikinn í dag.
Eyjamenn voru svekktir eftir leikinn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Keflavík 4 - 1 ÍBV
1-0 Hörður Sveinsson ('23)
2-0 Arnór Ingi Traustason ('74)
2-1 Denis Sytnik ('76)
3-1 Magnús Sverrir Þorsteinsson ('88)
4-1 Bojan Stefán Ljubicic ('90)

Það voru svekktir Eyjamenn sem gengu af velli eftir 4-1 tap gegn Keflavík í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag. Þar sem Stjarnan og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli þá hefðu Eyjamenn getað tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í dag.

Það var þó aldrei á dagskránni hjá Keflvíkingum sem léku vel í dag. Heimamenn komust í 2-0 en Eyjamenn minnkuðu muninn og markvörðurinn Albert Sævarsson misnotaði síðan vítaspyrnu áður en Keflvíkingar innsigluðu sigurinn með tveimur mörkum undir lokin.

Eyjamenn virkuðu stressaðir í fyrri hálfleik og ljóst var að þeir söknuðu Tryggva Guðmundssonar og Finns Ólafssonar sem voru í leikbanni. Sóknarleikur ÍBV var hugmyndasnuaður og eina markskot liðsins í fyrri hálfleik var 30 metra færi.

Keflvíkingar léku hins vegar vel og þeir leiddu 1-0 í hálfleik eftir mark frá Herði Sveinssyni.

Keflvíkingar héldu áfram að ógna í upphafi síðari hálfleiks og Eyjamenn áttu skalla í stöng á eigin marki auk þess sem Guðmundur Steinarsson ógnaði nokkrum sinnum með hörkuskotum.

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, sendi Eyþór Helga Birgisson og Gauta Þorvarðarson inn á og Eyjamönnum óx smátt og smátt ásmeginn eftir því sem leið á síðari hálfleikinn.

Það voru aftur á móti heimamenn sem skoruðu annað markið. Það gerði miðjumaðurinn Arnór Ingvi Traustaon með frábæru langskoti upp í bláhornið en þessi 17 ára gamli miðjumaður var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn í sumar.

Þarna virtust vonir ÍBV vera úr sögunni en nánast strax í næstu sókn náði Denis Sytnik að minnka muninn eftir undirbúning frá Gauta og Eyþóri.

Þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fengu gestirnir síðan gullið tækifæri til að jafna þegar boltinn fór í hendina á varnarmanni Keflavíkur og vítaspyrna var dæmd. Albert Sævarsson, markvörður ÍBV, fór á punktinn líkt og gegn Selfyssingum á dögunum en Lasse Jörgensen markvörður Keflvíkinga sá við honum.

Eyjamenn reyndu áfram að sækja til að ná jöfnunarmarki en þá opnaðist vörn þeirra tvívegis illa á lokamínútunum. Fyrst skoraði varamaðurinn Magnús Sverrir Þorsteinsson eftir fyrirgjöf og síðan skoraði annar varamaður, Bojan Stefán Ljubicic, eftir að hafa sloppið einn í gegn.

Lokatölur 4-1 fyrir Keflavík en sigur liðsins var heilt yfir sanngjarn. Eyjamenn féllu á síðasta prófinu, liðið náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik og þrátt fyrir að sóknarþunginn hafi verið meiri í síðari hálfleiknum þá dugði það ekki til.

Þriðja sætið er því niðurstaðan hjá ÍBV í sumar en það er eitthvað sem menn þar á bæ hefðu verið ánægðir með fyrir sumarið enda var stefnan sett á Evrópusæti. ÍBV var oft á toppnum í sumar en einhver bið verður á að liðið verði Íslandsmeistari á nýjan leik.

Keflvíkingar voru í toppbaráttunni framan af og miðað við góða byrjun er sjötta sætið vonbrigði á þeim bænum. Liðið kláraði þó mótið ágætlega og með frammistöðu eins og í dag ættu Keflvíkingar að geta gert betri hluti næsta sumar.

Keflavík: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Alen Sutej, Hólmar Örn Rúnarsson, Andri Steinn Birgisson, Guðmundur Steinarsson, Arnór Ingvi Traustason (Magnús Þór Magnússon 90), Haukur Ingi Guðnason (Bojan Stefán Ljubicic 64)), Hörður Sveinsson (Magnús Sverrir Þorsteinsson 64).
Ónotaðir varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Einar Orri Einarsson, Magnús Þórir Matthíasson, Viktor Smári Hafsteinsson.

ÍBV: Albert Sævarsson, Arnór Eyvar Ólafsson (Yngvi Magnús Borgþórsson 83), Eiður Aron Sigurbjörnsson, Rasmus Christiansen, Matt Garner, Danien Justin Warlem (Gauti Þorvarðarson 60), Tonny Mawejje, Ásgeir Aron Ásgeirsson (Eyþór Helgi Birgisson 52), Andri Ólafsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Denis Sytnik.
Ónotaðir varamenn: Elías Fannar Stefnisson, Anton Bjarnason, Kjartan Guðjónsson, Óskar Elías Zoega Óskarsson.

Aðstæður: Rennblautur völlur og hliðarvindur
Áhorfendur: 1570
Dómari: Jóhannes Valgeirsson
Maður leiksins: Hólmar Örn Rúnarsson (Keflavík)
banner