Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 26. september 2010 09:00
Anton Ingi Leifsson
Birna Berg: Ætlum að sýna að við eigum heima í efstu deild
Kvenaboltinn
Birna í landsleik á síðasta ári.
Birna í landsleik á síðasta ári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birna Berg í leik gegn Stjörnunni fyrr í sumar.
Birna Berg í leik gegn Stjörnunni fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birna Berg Haraldsdóttir, markvörður FH, er bjartsýn fyrir leikinn gegn Haukum í dag. FH þarf sigur og á að treysta á önnur úrslit til að halda sæti sínu, en FH mætir Haukum á Kaplakrikavelli klukkan 14.00 í dag.

,,Leikurinn í dag leggst mjög vel í mig og ég er full tilhlökkunar. Það er ekki á hverjum degi sem maður mætir Haukum í þýðingarmiklum lokaleik svo ég mun bara njóta þess að spila og vona að við náum þrem stigum út úr þessum leik," sagði Birna Berg við Fótbolta.net.

,,Möguleikar okkar á sigri eru jafnmiklir og Hauka. Við förum inn í þennan leik til þess að vinna og við förum inn í leikinn með því hugarfari að vinna leikinn og sýna að við eigum heima í efstu deild og spila við þær bestu."

Birna Berg tók ekki þátt í fyrri leiknum, en hún var stödd erlendis. FH vann fyrri leikinn 2-0 og vonast Birna eftir öðrum góðum sigri:

,,Ég var ekki með í fyrri leiknum en ég var á Opna Evrópumótinu með U18 í handbolta þegar sá lekur var. Iona Sjöfn fór í markið og stóð sig frábærlega og hélt hreinu, en ég fylgdist með á netinu auk þess að ég var í beinu símasambandi við áhorfanda á vellinum. Haukarnir munu mæta dýrvitlausir í þennan leik og vonandi verður þetta góð skemmtun fyrir áhorfendur."

FH dugir ekki sigur í leiknum í dag ætli þær að halda sæti sínu í deildinni, en þær þurfa að treysta á að Grindavík tapi fyrir Fylki eða Afturelding fyrir Þór/KA:

,,Við þurfum fyrst og fremst að klára okkar leik og síðan pælum við í hinum leikjunum. Ég vona hinsvegar innilega að Þór/KA og Fylkir vinni sína leiki, en það þýðir lítið að hafa áhyggjur af þessum leikjum þar sem ég get engu breytt um úrslitin. Við hugsum bara um okkar leik og einbeitum okkur að því að spila sem best og skora fleiri mörk en andstæðingurinn. Ef við vinnum þá höfum við gert allt sem við gátum en auðvitað er fúlt að þurfa á treysta önnur lið en svona er boltnn," sagði Birna og hvatti að lokum alla Hafnirðinga til að mæta:

,,Ég hvet alla Hafnfirðinga og aðra fótboltaáhugamenn til að mæta á leikinn enda er draumurinn að spila á Kaplakrikavelli fyrir framan fullri stúku. Ég hef trú á að það muni einhvern tímann gerast hvort sem það verður í þessu lífi eða næsta. Ekki má gleyma að það er frítt á leikinn svo fólk getur mætt veskislaust á völlinn," sagði Birna Berg Haraldsdóttir að lokum við Fótbolti.net.
Slapp
banner
banner