Bjarni Jóhannsson verður áfram þjálfari Stjörnunnar á komandi leiktíð en þetta var staðfest í fréttatilkynningu frá félaginu sem barst fjölmiðlum rétt í þessu.
Bjarni hefur stýrt liðinu undanfarin þrjú ár. Hann kom liðinu upp ú 1. deildinni á fyrsta ári og undir hans stjórn hefur liðið haldið sæti sínu í deildinni, endaði í 7. sæti í fyrra og 8. sæti í ár.
Hér að neðan má sjá yfirlýsingu Stjörnunnar.

Knattspyrnudeild Stjörnunnar og Bjarni Jóhannsson hafa gert nýjan þriggja ára samning um þjálfun meistaraflokks karla hjá Stjörnunni.
Bjarni hefur þjálfað lið Stjörnunnar síðastliðin 3 ár með góðum árangri. Liðið fór upp í efstu deild á fyrsta ári undir hans stjórn og er að festast í sessi sem úrvalsdeildarfélag á Íslandi.
Áframhaldandi uppbygging liðsins er framundan. Þar verður m.a. byggt á þeim öfluga kjarna leikmanna sem komið hafa liðinu í fremstu röð, auk yngri leikmanna sem uppaldir eru hjá félaginu.
Stjórn knattspyrnudeildar Stjörnunnar lítur björtum augum til framtíðar á öllum sviðum. Nú liggur fyrir að þrír hæfir og reyndir þjálfarar munu stýra liðum félagsins áfram og lengra.
Bjarni Jóhannsson er þjálfari meistaraflokks karla, Þorlákur Már Árnason er þjálfari meistaraflokks kvenna og Ásmundur Guðni Haraldsson er yfirþjálfari yngri flokka.