Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   lau 16. október 2010 23:15
Hafliði Breiðfjörð
Alfreð og Dóra María best - Kristinn og Dagný efnilegust
Alfreð er besti leikmaður Pepsi-deildar karla.
Alfreð er besti leikmaður Pepsi-deildar karla.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Dóra María er besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna.
Dóra María er besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú rétt í þessu var verðlaunaafhendingu að ljúka á lokahófi KSÍ þar sem Alfreð Finnbogason leikmaður Breiðabliks og Dóra María Lárusdóttir leikmaður Vals voru valin leikmenn ársins.

Kristinn Steindórsson úr Breiðablik og Dagný Brynjarsdóttir úr Val voru valin efnilegust og þjálfarar meistaraliðanna, Ólafur Helgi Kristjánsson og Freyr Alexandersson bestu þjálfararnir.

Hér að neðan má sjá hvernig verðlaunin skiptust á hófinu.


Karlar:
Leikmaður ársins: Alfreð Finnbogason, Breiðablik
Efnilegasti leikmaður ársins: Kristinn Steindórsson, Breiðablik

Lið ársins: Ingvar Kale (Breiðablik, James Hurst (ÍBV), Jón Guðni Fjóluson (Fram), Elfar Freyr Helgason (Breiðablik), Kristinn Jónsson (Breiðablik), Baldur Sigurðsson (KR), Jökull Elísabetarson (Breiðablik), Ólafur Páll Snorrason (FH), Kristinn Steindórsson (Breiðablik), Atli Viðar Björnsson (FH), Alfreð Finnbogason (Breiðablik).

Þjálfari ársins: Ólafur Helgi Kristjánsson, Breiðablik
Dómari ársins: Gunnar Jarl Jónsson
Prúðasta liðið: Breiðablik
Prúðasti leikmaðurinn: Fjalar Þorgeirsson, Fylkir
Stuðningsmenn ársins: Selfoss


Konur:
Leikmaður ársins: Dóra María Lárusdóttir, Valur
Efnilegasti leikmaður ársins: Dagný Brynjarsdóttir, Valur

Lið ársins: María Björg Ágústsdóttir (Valur), Embla Sigríður Grétarsdóttir (Valur), Katrín Jónsdóttir (Valur), Lidija Stojkanovic (Fylkir), Thelma Björk Einarsdóttir (Valur), Katie McCoy (Stjarnan), Sara Björk Gunnarsdóttir (Breiðablik), Dóra María Lárusdóttir (Valur), Hallbera Guðný Gísladóttir (Valur), Rakel Logadóttir (Valur), Mateja Zver (Þór/KA)

Þjálfari ársins: Freyr Alexandersson, Valur
Dómari ársins: Guðrún Fema Ólafsdóttir
Prúðasta liðið: Valur og Stjarnan
Prúðasti leikmaðurinn: Sandra Sigurðardóttir, Stjarnan
Stuðningsmenn ársins: Þór/KA
banner
banner