Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   mán 25. október 2010 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Framhaldsskólamótið: Fjölbraut við Ármúla Íslandsmeistari
Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla með bikarinn á laugardag
Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla með bikarinn á laugardag
Mynd: Úr einkasafni
Fjölbrautaskólinn við Ármúla varð á laugardag Íslandsmeistari framhaldsskólamótsins í knattspyrnu eftir að hafa unnið Fjölbrautaskólann í Breiðholti í úrslitaleik.

FÁ hóf mótið í riðli 1 og lenti þar í 2. sæti með 9 stig, en Borgarholtsskóli sigraði riðilinn með því að vinna alla sína leiki. FÁ tapaði fyrsta leiknum fyrir Borgó 2-1, en leikmenn rifu sig upp úr því með því að vinna Hraðbraut 10-0 og MS 3-0. Þrjú stig voru gefin til allra til þar sem Iðnskólinn í Hafnarfirði mætti ekki til leiks.

FÁ fór þaðan í úrslitariðil þar sem liðið mætti FS og VMA 2 á Ásvöllum. FÁ tókst að leggja VMA frá Akureyri af velli með þremur mörkum gegn engu áður en liðið sigraði svo FS með tveimur mörkum gegn engu.

Liðið kláraði svo mótið með því að sigra lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti 2-1. FB komst yfir með marki úr vítaspyrnu, en það varði ekki lengi þar sem Sturlaugur Haraldsson leikmaður KR og Þórir Guðjónsson sem leikur með Val sáu um að tryggja FÁ sigur, en þetta sama lið lenti í 2. sæti mótsins í fyrra.
Slapp
banner
banner