Hér er hann ásamt Guðmundi Magnússyni leikmanni Fram, en Örvar segist eiga stóran þátt í að hafa komið Gumma á þann stall í knattspyrnunni sem hann er á í dag.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla varð Íslandsmeistari í framhaldsskólamótinu í knattspyrnu um helgina eftir 2-1 sigur á FB en Örvar Jakobsson þjálfari liðsins var að vonum ánægður með frammistöðu liðsins.
Örvar, sem er 21 árs gamall nemi við Fjölbraut í Ármúla hefur tekið það að sér að þjálfa liðið seinustu tvö ár, en í fyrra þá stýrði hann liðinu alla leið í úrslitaleikinn gegn Verzlingum sem fór ekki betur en svo að liðið tapaði 3-2 naumlega. Það var þó annar bragur á liðinu í ár en liðið fór alla leið.
,,Vissulega er það rétt. Í fyrra lékum við til úrslita við lið Versló og töpuðum þar 3-2 í hörkuleik. Það má segja að það tap sé tilkomið útaf því að við byrjuðum leikinn ekki strax frá fyrstu mínútu og fengum þetta svolítið í bakið á þeim mínútum," sagði Örvar í samtali við Fótbolta.net.
,,Eftir leikinn í fyrra þá höfum við talað um það að við ætluðum að vinna mótið í ár og það tókst. Munurinn á þessu núna heldur en í fyrra var sá að það var einhvernvegin betri andi yfir þessu og finnst mér við verðskuldaðir meistarar. Fyrir hönd liðsins vil ég þakka FB fyrir frábæran og spennandi úrslitaleik."
Lið FÁ spilaði í riðli 1 og fékk 9 stig af 12 mögulegum, en voru úr keppni samt sem áður þrátt fyrir yfirburða árangur í riðlinum. Örvar fékk símhringingu frá KSÍ sem breytti þó öllu skipulagi.
,,Já eins og staðan var eftir riðlakeppnina þá vorum við úr leik en svo fengum við símhringingu frá höfuðstöðvum KSÍ á fimmtudegi fyrir úrslitakeppni og spurðir hvort við værum til í að koma inn því ME gátu ekki mætt og við náttúrulega svöruðum því játandi," sagði Örvar.
,,Ég vil meina að réttlætinu hafi þar með verið fullnægt því hvernig er hægt að neita liði um spilrétt í úrslitakeppni sem fær 9 stig af 12 í riðli og með markatöluna 17:2, bestu markatöluna í mótinu?"
Örvar var með góðan hóp af leikmönnum sem margir hverjir leika í Pepsi-deildinni, en þar má nefna Hörð Björgvin Magnússon og Guðmund Magnússon hjá Fram, Þórir Guðjónsson hjá Val og Eggert Rafn Einarsson hjá KR.
,,Já það er rétt ég var með frábæran hóp í höndunum. Snillingana mína tvo í Fram sem ég vil meina að ég eigi stóran þátt í að hafa komið á þann stall í knattspyrnunni sem þeir eru á í dag, þá Guðmund Magnússon og Hörð Björgvin Magnússon."
,,En ég vil ekkert vera að draga einhvern einn sérstaklega út því þetta lið var gjörsamlega frábært alls staðar á vellinum og ég er bara ótrúlega ánægður með þá. Við vorum þarna nokkrir sem spiluðum í fyrra líka og þar á meðal fyrirliðinn minn Sturlaugur Haraldsson sem var gjörsamlega frábær.“
Örvar hefur nú stýrt liði FÁ tvisvar í úrslitaleik framhaldsskólamótsins og því spurning hvort þetta gæti ýtt honum út í frekari þjálfun.
,,Ég meina hví ekki? Ég er nú búinn að sýna það að ég er búinn að fara með lið tvo ár í röð í úrslit í þessu móti og hirða dolluna í annað skiptið þannig ég vil alveg meina að ég geti alveg staðið þarna á hliðarlínunni og stjórnað liði eins og margir af þessum vitleysingum sem halda að þeir séu einhverjir spekingar en eru yfirleitt með allt niðrum sig," hélt hann áfram.
,,Pabbi, Bjarni Jakob Stefánsson er nú þjálfari og hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá mfl Gróttu undanfarin ár þannig það má segja að það sé mikið fótboltatal oft á heimilinu þannig ætli ég fari ekki bara að demba mér í að taka þjálfarastigin hjá KSÍ. Þannig ef einhver lið hafa áhuga og vantar þjálfara þá endilega bjallið í kallinn," sagði hann að lokum.



