Markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Fylki.
Samningur Bjarna við Stjörnuna rann út á dögunum og því gat hann samið við Fylkismenn.
,,Eftir að hafa legið lengi undir feldinum góða og lent í átökum milli huga og hjarta þá er hagsmunum minnar andlegu heilsu best borgið í heimahögum," sagði Bjarni Þórður við Fótbolta.net í kvöld.
Bjarni kom til Stjörnunnar frá Fylki árið 2008 en nú er hann kominn aftur á heimaslóðir.
Hjá Fylki mun Bjarni Þórður berjast við Fjalar Þorgeirsson um markvarðarstöðuna.