Heimild: Sky
Roy Hodgson, knattspyrnustjóri Liverpool var fljótur að koma sér niður á jörðina aftur eftir að lið hans sigraði Bolton með einu marki gegn engu.
Liverpool sigraði Bolton Wanderers með einu marki gegn engu á Reebok leikvanginum í gær þar sem sigurmarkið kom á 86. mínútu frá argentíska hægri kantmanninum Maxi Rodriguez eftir frábæra hælsendingu frá Fernando Torres.
Liverpool fór með sigrinum úr fallsæti og í 12. sæti deildarinnar, en Hodgson er rólegur og tekur einungis einn leik fyrir í einu.
,,Ef við hefðum komið inn í þennan leik í einhverju öðru sæti í deildinni og með nokkra sigra á bakinu þá hefðum við verið mun rólegri," sagði Hodgson.
,,Það er enn of snemmt að vera bjartsýnn, en þetta var alla vega skref í rétta átt og það er virkilega ánægjulegt að sjá ljós í öllu myrkrinu." sagði hann að lokum.