banner
   lau 06. nóvember 2010 15:10
Alexander Freyr Tamimi
Hargreves meiddur af velli eftir fimm mínútur
Owen Hargreaves er með eindæmum óheppinn.
Owen Hargreaves er með eindæmum óheppinn.
Mynd: Getty Images
Endurkoma Owen Hargreves í lið Manchester United fékk heldur betur skjótan og sorglegan endi í viðureign liðsins gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn er enn í gangi en Hargreves fór af velli meiddur eftir einungis fimm mínútur.

Hargreaves hefur verið gríðarlega mikið meiddur frá því að hann gekk til liðs við United og hafði hann ekki verið í byrjunarliði þeirra frá því í september 2008. Það var því mikið gleðiefni fyrir stuðningsmenn liðsins að sjá hann aftur í byrjunarliðinu, en nú hefur sú ánægja tekið snöggan endi.

Meiðslin virtust þó ekki vera hnémeiðslin sem hafa verið að hrjá hann, heldur virtist hann einfaldlega hafa tognað. Óheppni hans virðist einfaldlega ekki eiga sér nein takmörk.

Inn fyrir Hargreaves kom Portúgalinn Bebe sem hefur heldur betur verið að þagga niður í gagnrýnisröddum með fínni frammistöðu þegar hann fær tækifæri.
banner
banner
banner
banner