Íslendingur með tilboð frá Grikklandi í höndunum.
Hallur Kristján Ásgeirsson sem á íslandsmet í félagaskiptum hefur fengið samningstilboð frá 2.deildarliðinu Larissa í Grikklandi en Hallur hefur skipt 16 sinnum um félag hér á landi. Hallur sem er 25 ára sóknarmaður er búin að vera úti til reynslu hjá Larissa í einn mánuð og þeir buðu honum samning. Hann átti einnig að fara út til reynslu hjá gríska úrvalsdeildarliðinu Panionios en það gekk til baka á seinustu stundu og því fór hann aðeins til Larissa. Við höfðum samband við Hall og spurðum hann aðeins nánar út í þetta.
Hallur sagði við okkur að hann þyrfti að svara tilboði Larissa innan tveggja vikna en hann taldi það vera helmingslíkur á því að hann fari út. Hallur lék með Víkingi Ólafsvík í lok sumars en Víkingur sigraði 3.deildina í sumar. Hallur er ekki samningsbundinn Víkingi og aðspurður sagði hann að það væru einnig lið hér heima sem vildu fá sig í sínar raðir. Hallur sagði að þetta væru tvö úrvalsdeildarlið, eitt 1.deildarlið og tvö 2.deildarlið en hann sagðist ekki geta tjáð sig meira um það.


