Það er ýmislegt sem menn leggja á sig og sumir eru frekar auðplataðir. Nokkrir hressir menn úr Árbænum sem hafa húmorinn á réttum stað tóku sig til í gær og útbjuggu ,,falska" fréttatilkynningu sem þeir sendu helstu miðlum landsins, þar á meðal okkur hér á Fótbolti.net. Við hér á Fótbolti.net sáum í gegnum plottið en það gerðu þó ekki allir en tilkynningin birtist orðrétt á vef Morgunblaðsins í morgun og einnig á Gras.is. Þá byrjuðu forráðamenn Fylkis að fá símtöl fyrir allar aldir í morgun þar sem spurt var út í samninginn. Tilkynningin og meðfylgjandi myndir er hér að neðan.
NÝR ÞJÁLFARI HJÁ FYLKI Í ÁRBÆNUM
Tekist hefur samkomulag á milli Fylkis og Milan Stefáns Jankovic um þjálfun hjá félaginu. Janko mun verða yfirmaður þjálfunar yngri flokka félagsins ásamt því að vera tæknilegur ráðgjafi meistaraflokks þjálfaranna Þorláks Árnasonar og Jóns Sveinsson. Janko, sem þjálfaði lið Keflvíkinga á síðustu leiktíð með stórgóðum árangri, er á leið til Sarajevo að horfa á leik Belgrad og Real Madrid og kom hingað til Horsens til að innsigla þennan samning. Einnig mun Jonko skoða 2 mjög sterka leikmenn í fyrir Fylki í ferð sinni. Samningurinn var undirritaður í gærkvöldi í fundarherbergi Íþróttamiðstöðvar Horsens, sem er einkar glæsileg.
Sjá meðfylgjandi myndir

