Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 31. október 2003 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Meira af Janko og Fylki.
,,Samningar
,,Samningar
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Eins og við sögum frá í gær í frétt með fyrirsögninni: Var Fylkir að ráða nýjan þjálfara? var í fyrrakvöld send út fölsk fréttatilkynning sem t.d. var birt á Gras.is og Mbl.is um að Fylkir hafi ráðið Milan Stefán Jankovic þjálfara Keflavíkur sem þjálfara hjá sér. Við höfðum samband við Andreas Lúðvíksson sem var maðurinn á bakvið grínið til að forvitnast frekar um máli en myndirnar sem fylgdu fréttinni voru ekki falsaðar heldur var Jankovic sjálfur á þeim.

,,Ég get alveg staðfest það að þetta er Janko sem er á myndunum. Einnig er þarna Gunnar Már Gunnarson,kallaður Hammerinn í Grindavík og spilaði með þeim til fjölda ára.Mjög harður stuðningsmaður.

Einnig sit ég þarna við hlið Janko til skrifa undir"samninginn" og handsala hann. Það skal tekið fram að ég er Fylkismaðurinn sem átti þessa búninga og fána. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá svona harðan stuðningsmann annars félags klæða sig í Fylkisbúninginn."


Grínið sem upphaflega átti ekki að komast út á meðal almennings varð þar með orðið opinbert um allt land.

,,Þetta átti einungis að vera lokal djók hérna í Horsens og sérstaklega innan skólans okkar. Hér snýst mikið um fótbolta og það verða allir að vera stuðningsmenn einhvers liðs. Þessu var einungis beint að einum stuðningsmanni kefvíkinga hérna og átti ekki að fara lengra."

,,Á þeim forsendum að þetta færi ekki lengra, þá var Janko tilbúinn að taka þátt í þessu eftir mikið suð af okkar hálfu. Ég vil að það komi skýrt fram að hann ætlaði aldrei að hrella eða skapa skjálfta hjá nokkrum manni, enda var hann í góðri trú um að þetta færi ekki lengra."


En hvað var Jankovic að gera hjá Íslendingunum í Danmörku og á hvaða leið var hann?

,,Ástæða þess að hann var hérna hjá okkur er sú að hann var í heimsókn, ásamt Gunnari "Hammer" hjá Badda vini mínum og skólafélaga og gistu þeir hjá honum. Baddi vildi ekki vera með á mynd þar sem hann segist aldrei ætla að fara í annan búning en Grindavíkurbúninginn. Þeir stoppuðu hérna í 1 1/2 sólahring á leiðinni til Sarajevo Þar sem þeir eru að fara að sjá leik Belgrad (eða Zagrab) og Real madrid (ef ég man rétt)"

En vissu strákarnir af umfjölluninni sem skapaðist hér heima vegna málsins?

,,Við erum búnir að heyra margt um þetta að heiman já. Vitum að þetta var birt á mbl þó að við höfum ekki séð það, sáum það á gras.is og það voru komin svör þar frá reiðum Keflvíking og svo vorum við að heyra að þetta hafi birst í útvarpi um morguninn, en höfum ekki heyrt á hvaða stöð. "

,,Einnig er búið að skrifa um þetta á fylkissíðunni undir spjallinu. Vissi að hringt var í einhverja Fylkismenn til að reyna að fá þetta staðfest eins og kemur fram á fylkis spjallinu."


Að lokum...

,,Við viljum að það komi fram að þetta var einungis birt á heimasíðunni minni af okkar hálfu. Það var ekki á okkar vegum að þetta fór lengra, þ.e. var sent til fjölmiðla, eins og kemur fram í mínum útskýringum á heimasíðunni og við viljum sérstaklega taka fram að Janko er ekki að neinu leiti viðriðinn við Fylki."

,,Einnig vil ég láta við að hann gleymdi hleðslutækinu sínu fyrir GSM símann þannig að það er ástæðan fyrir því að menn hafi ekki náð í hann en ekki að hann vilji ekki svara."
Slapp
banner
banner