Heimild: Vefur Vals
Katrín Jónsdóttir fyrirliði íslands- og bikarmeistara Vals og íslenska landsliðisins hefur ákveðið að kveðja Val að sinni og ganga til liðs við sænska liðið Djurgården en þetta kemur fram á vef Vals í kvöld.
Katrín hyggur á framhaldsnám í læknisfræði í haust og er þetta liður í þeim áformum.
Katrín er 33 ára og gekk til liðs við Val vorið 2004 og hefur hún frá þeim tíma leikið 107 leiki með Val í bikar- og Íslandsmóti og skorað í þeim 43 mörk.
„Þetta var erfið ákvörðun, stjórn knattspyrnudeildarinnar reyndi mikið að halda mér hér í sumar og gerði mér mjög gott tilboð. En það gerði útslagið að ég hef um nokkra hríð haft hug á að fara í sérnám og stíga næsta skref í mínu fagi og Djurgården mun aðstoða mig í þeim efnum," segir Katrín á vef Vals og bætir við.
„Það að verður mjög erfitt að kveðja Hlíðarenda og ég mun fylgjast grannt með gengi stelpnanna um ókomna tíð.“
Katrín er annar leikmaður Vals sem gengur til liðs við Djurgården í janúar því áður hafði Dóra María Lárusdóttir farið til félagsins. Fyrir eru hjá félaginu Guðbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir en sú síðarnefnda lék ekkert á síðasta ári vegna höfuðmeiðsla sem hún hlaut á Evrópumóti kvennalandsliða 2009.


