Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 02. febrúar 2011 19:05
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Terry himinlifandi með komu Torres og Luiz
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
John Terry fyrirliði Chelsea er afar ánægður með komu Fernando Torres og David Luiz til félagsins.

Chelsea krækti í þessa leikmenn á lokadegi félagaskiptagluggans og þar að auki er liðið að finna sitt rétta form.

,,Að fá Torres og Luiz er mjög góð yfirlýsing hjá félaginu," sagði Terry.

,,Það lætur menn vita að við erum á markaðnum og erum að kaupa eins og Manchester City sem hafa eytt háum fjárhæðum."

,,Það eru allir himinlifandi með þetta og það er frábært að fá tvo frábæra leikmenn."

banner
banner
banner