Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Hoffenheim í Þýskalandi og landsliðsmaður Íslands svaraði nýlega fjölda spurninga frá lesendum Fótbolta.net. Þar kennir ýmissa grasa en hér að neðan má sjá svörin öll í heild sinni sem er nokkuð áhugaverð lesning.
Sölvi Daníelsson
Hvað æfðirðu þig mikið á dag þegar þú varst 11 ára gamall?
Ég var eins mikið og ég gat í fótbolta þegar ég var lítill.
Eiríkur Pétursson, Árni Freyr Helgason
Hvort ertu meiri Bliki eða FH-ingur?
FH-ingur.
Eðvald Sævarsson, 14 ára, Reykjavík
Er það satt að Manchester hafi sýnt áhuga á þér eða er þetta allt bara slúður?
Ég bara er ekki með það á hreinu.
Tómas Helgi Wehmeier, 17 ára, Reykjavík
Vissirðu alltaf að þú myndir fara út í atvinnumennsku og ná svona langt?
Auðvitað vissi ég það ekki, en ég setti alltaf stefnuna á það.
Brynjar Rafn Friðriksson, 17 ára, Reykjavík
Í hvernig skóm spilarðu?
Adidas adipure.
Árni Bragi Eyjólfsson, 16 ára, Mosfellsbær
Ég var að spá, ef þú fengir formlegt tilboð frá Manchester United, Arsenal og Atletico Madrid og einhverjum liðum sem talað er um að hafi áhuga á þér, hvaða lið myndirðu velja og af hverju?
Það yrði erfitt val en held að Manchester United yrði fyrir valinu.
Daníel Guðjónsson, 15 ára, Fjarðabyggð/Sindri Hrafn Friðþjófsson, 18 ára/Ívar Máni Garðarsson
Hver var Idolið þitt í æsku og hver er það núna?
Zidane, Maradona, Rigobert Song.
Eyþór Oddsson, 19 ára, Reykjavík
Hver er erfiðasti andstæðingur sem þú hefur spilað við og hvers vegna?
Steven Gerrard, besti vinur Guðlaugs Victors, hann var erfiður.
Eyþór Oddsson, 19 ára, Reykjavík/Stefán Marteinn Ólafsson, 17 ára, Keflavík
Hver er besti samherji sem þú hefur spilað með og hvers vegna?
Marek Matejovski, tæknilega mjög góður og með góðar sendingar.
Þórir Arnar
Er eitthvað til í því að þú ert undir smásjá hjá Manchester United og ef þú myndir fá tækifæri til þess að fara þangað, myndirðu taka það?
Veit það bara ekki, það yrði mjög erfitt að segja nei.
Sigurbjörn Saifa, 21 árs, Álftanesi.
Um leið þú komst til Þýskalands, varstu þá meðvitaður um landið varðandi tungumál og menningu eða bara aðallega boltann þar á landi?
Jújú, ég var með flesta hluti á hreinu.
Sigurður Benónýsson, 14 ára, Vestmannaeyjar
Hvað er besta leiðin til þess að komast í atvinnumennskuna?
Æfa meira en hinir.
Ívar Baldvinsson, 25 ára, Reykjavík
Varstu rassskelltur í sturtunni eftir fyrstu æfinguna hjá Hoffenheim? :) Og er skylda að fara í sturtu eftir æfingar hjá ykkur? :)
Nei sem betur fer var ég það ekki, og veit ekki með skyldu en það fara allir í sturtu.
Þórir Arnar, Davíð Alexander Östergaard, Máni Sveinn Þorsteinsson, Bjarnar Ingi Pétursson
Er eitthvað til í því að þú ert undir smásjá hjá Manchester United og ef þú myndir fá tækifæri til þess að fara þangað, myndirðu taka það?
Veit það bara ekki, en það yrði erfitt að segja nei.
Davíð Ingi Magnússon, 26 ára, Reykjavík
Sæll Gylfi, mig langar að vita hvernig þú hagar andlega þættinum. Hvað er það sem drífur þig áfram í fótboltanum? Og hver eru þín endanlegu markmið með ferlinum?
Ég hef bara gaman að því að spila fótbolta og vill ná öllum markmiðum sem ég hef sett mér.
Jón Arnar
Ef þér stæði til boða að ganga til liðs við Arsenal eða Manchester United, hvort liðið myndirðu velja?
Manchester United.
Daniel Örn Sólveigarson , 15 ára, Mosfellsbær
Hvernig var að spila á móti Crystal Palace á síðasta tímabili, og spila á móti stórstjörnum eins og Darren Ambrose og Juliano Speroni ?
Algjör snilld, mjög góðir leikmenn þar á ferð.
Andri Snær Sölvason, 12 ára, Keflavík
Borðarðu mikið af nammi?
Nei.
Arnar Kjartansson, Ágúst Logi Pétursson, Ísak Jónasson, Atli Sigmundsson, Ívar Máni Garðarsson
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Manchester United.
Sólmundur Aron Björgólfsson
Hvaðan ertu?
Hafnarfirði.
Sólmundur Aron Björgólfsson
Hvert er draumurinn að komast?
Ensku úrvalsdeildina.
Sólmundur Aron Björgólfsson
Býrðu einn?
Eins og er já.
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson, Grindavík, 17 ára
Hvort er skemmtilegra að spila með A-landsliði Íslands eða U-21 landsliðinu?
Bæði
Kristófer Karl Jensen
Knár fótboltaáhugamaður sagði mér að þú sért atvinnumaður sem búinn hefur verið til?
Já hann hefur rétt fyrir sér.
Arnar Helgi
Hvaða leikmaður er skemmtilegastur í Hoffenheim?
Demba Ba.
Elías Orri Njarðarson, 13 ára, Reykjavík
Ef þú myndir fá boðna samninga hjá Adidas, Nike, Puma, Minunzo eða Umbro, hvað myndirðu velja og hvaða tegund?
Adidas.
Bjarnar Ingi Pétursson, 13 ára, Kópavogur
Hvor finnst þér betri, Lampard eða Gerrard?
Lampard.
Gylfi Karl Gíslason, Álftanes, 15 ára.
Hvað borðarðu á leikdegi og hve löngu fyrir leik?
Venjulega hafragraut, banana, kjúklingapasta.
Hilmar Ægir Þórðarson, 33 ára, Hafnarfjörður
Sæll Gylfi, telur þú að frændur mínir og bræðurnir Arnór Freyr og Viktor Örn Guðmundssynir geti orðið samherjar þínir hjá Hoffenheim í framtíðinni og fékkstu ekki smá samviskubit þegar þú skoraðir gegn Liverpool í FA bikarnum?
Já Arnór á fína möguleika ef hann heldur afram.
Ísak Jónasson, Róbert Logi Kristinsson, Adam Þórðarson, Ívar Máni Garðarsson
Tókstu oft aukaæfingar þegar þú varst yngri? Hvernig aukaæfingar gerðirðu? Voru þær mikilvægar?
Já ég gerði það, tækniæfingar og skotæfingar.
Þorsteinn Helgi Valsson, Dalvík
Sæll Gylfi, mig langar að vita, hvernig undirbýrðu þig fyrir æfingar og leiki? Ertu með einhverja rútínu eða hugsarðu um eitthvað sérstakt áður en þú gengur út á völlinn ?
Venjulega með sömu rútínu, borða vel og slappa af fyrir leik. Hugsa svo ekkert um neitt sérstakt nema einbeiti mér bara að leiknum.
Viðar Ari Jónsson, 16 ára, Reykjavík
Hvernig fannst þér Bryngeir Torfason sem þjálfari og hvernig þjálfari var hann?
Hann var flottur, gaman að kallinum.
Þorvaldur Garðar Kvaran, 15 ára, Reykjavík
Hvað telur þú vera mikilvægustu hæfni miðjumanns?
Góðar sendingar, yfirsýn, góðu formi, tæknileg geta.
Þorvaldur Garðar Kvaran, 15 ára, Reykjavík
Hvernig æfðirðu þig til að verða svona góður í langskotum?
Eða varstu bara alltaf svona góður í þeim? Bara margar skotæfingar.
Þorvaldur Garðar Kvaran, 15 ára, Reykjavík
Heldurðu að strákur sem hefur ekki verið valinn í neitt U16, U17 eða svoleiðis landslið eigi möguleika á því að komast eitthvað til útlanda í fótbolta?
Já að sjálfsögðu er það hægt.
Guðmundur Kristjánsson, 13 árs, Kópavogur
Hvort ertu hræddari í lyftu eða flugvél?
Lyftu.
Dagur Björnsson, 22 ára, Borgarfjörður Eystri
Hvernig er svo tilfinningin að vera orðaður við stórlið eins og Manchester United?
Það er auðvitað mjög góð tilfinning.
Ólafur Frímann Kristjánsson, 16 ára, Reykjavík
Hvaða þjálfari hefur verið þér eftirminnilegastur og af hverju?
Brian Mcdermott hjá Reading í fyrra. Fórum á frábært ,,run" þegar hann tók við og unnum eigilega flesta leiki.
Þór Ríkharðsson
Sæll Gylfi og til hamingju með árangurinn!
Mig langaði að spyrja: Hvað gerirðu margar magaæfingar á dag? Og hvað margar bakæfingar á móti?
Takk fyrir það, það fer bara eftir leikjaprógramminu hjá okkur en maður tekur eins mikið og líkaminn leyfir.
Jósef Halldór Þorgeirsson, 15 ára, Akranes
Þegar þú varst unglingur, varstu eitthvað að skara fram úr, og varstu með þeim bestu ?
Nei get ekki sagt það, það voru flestir stærri og sterkari en ég og litu þá betur út í leikjum.
Jósef Halldór Þorgeirsson, 15 ára, Akranes
Þegar þú varst unglingur, hugsaðirðu mjög vel um mataræðið, varstu mikið í nammi og gosbindindum?
Já byrjaði eitthvað að hugsa um það áður en ég flutti út til Englands um 15 ára gamall.
Nökkvi Freyr Smárason, 14 ára , Stykkishólmur
Spilarðu eitthvað golf? Ef svo er, hvað ertu með í forgjöf?
Já spila mikið golf, er með um 13 í forgjöf.
Einar Bolislav Ardal, 14 ára, Reykjavík
Wie werden die deutschen Richter? (hvernig eru þýsku dömurnar?
Þær eru ágætar, en þær íslensku eru fallegastar.
Ásta María Harðardóttir, 14 ára, Vestmannaeyjar/Stefán Marteinn Ólafsson, 17 ára, Keflavík/Hilmar Másson, 15 ára, Húsavík
Hvað er flottasta markið þitt sem þú hefur skorað á ferlinum?
Held markið með U-21 gegn Skotlandi eða gegn W.B.A í FA Cup bikarnum í framlengingu.
Ásta María Harðardóttir, 14 ára, Vestmannaeyjar/Hilmir Þór Kjartansson, 22 ára, Reykjavík
Hvaða liði myndirðu helst vilja að spila með ef þú myndir enda ferilinn þinn á Íslandi? Heldurðu að það muni gerast?
Já alveg agætis líkur á að ég taki kanski 1-2 tímabil á Íslandi. En það verður þá alltaf með FH.
Óskar Páll Davíðsson, 13 ára, Húsavík
Hvert er eftirminnilegasta atvikið í atvinnumennskunni?
Skora á Anfield og komast á EM með Íslandi.
Óskar Páll Davíðsson, 13 ára, Húsavík
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í enska boltanum?
Frank Lampard og Paul Scholes.
Gunnar Steinn Gunnarsson, 14 ára, Reykjavík
Sæll Gylfi, ætlarðu að fara frá Hoffenheim eftir tímabilið eða á næsta tímabili?
Býst ekki við því, er með 4 ára samning hérna. En maður veit aldrei hvað gerist í fótboltanum.
Aron Þormar Lárusson
Hver er besta minning þín á ferlinum?
Komast á EM með U-21.
Magnús Ríkharðsson, 15 ára, Sandgerði
Hverjar eru þær bestu æfingar sem þú leggur til að maður æfi til að ná árangri?
Tækniæfingar með bolta
Patrik Freyr Guðmundsson, 16 ára, Akureyri/Stefán Marteinn Ólafsson, 17 ára, Keflavík/Atli Sigmundsson, 16 ára, Hraunmannahreppur
Spilarðu Football manager? Ef svo er, hvaða liði ertu að stjórna?
Nei geri það ekki því miður.
Óskar Smári
Hvernig er Carlos Eduardo? Er hann ekki enn í liðinu?
Nei hann spilar í Rússlandi núna.
Hugrún Harpa Björnsdóttir, 13 ára, Selfoss
Kæri Gylfi, þú færð örugglega svolítið margar svona spurningar en þegar þú ert að labba einhversstaðar í Þýskalandi, eru einhverjir sem spyrja þig um eiginhandaráritun?
Kæra Hugrún, já það kemur alveg fyrir.
Hugrún Harpa Björnsdóttir, 13 ára, Selfoss
Hver er uppáhalds hljómsveitin þín og uppáhalds lagið þitt?
Hlusta mikið á Drake núna.
Lovisa Thompson , 11 ára, Seltjarnarnes
Hvað þarf maður að gera til þess að komast í atvinnumennskuna og verða jafn góður og þú?
Æfa sig mikið.
Hilmar, Anton Freyr
Hvernig varstu uppgötvaður og hvað varstu gamall þegar þú fórst til Reading?
Ég var 15 ára þegar ég flutti út, en var búinn að fara á reynslu nokkrum sinnum þangað í svona eitt ár.
Ísak Jónasson, 16 ára, Flúðum
Hvert er uppáhalds landsliðið þitt?
(Gert ráð fyrir að ekki sé átt við íslenska) Argentína.
Kjartan Birgisson, 15 ára, Akureyri
Hvaða mark skiptir þig mestu máli?
Móti Skotlandi og Liverpool.
Andrés Andrésson, 24 ára, Reykjavík
Hvar sérðu sjáfan þig eftir 5 ár?
Í ensku úrvalsdeildinni.
Andrés Andrésson, 24 ára, Reykjavík
Hvað finnst þér um Íslenska landsliðið í fótbolta? :)
Það er mikið af góðum leikmönnum þar og margir ungir strákar að koma upp svo vonandi eru bjartir tímar framundan.
Stefán Marteinn Ólafsson, 17 ára, Keflavík
Hver er þinn drauma samherji?
Lampard.
Stefán Marteinn Ólafsson, 17 ára, Keflavík
Hvaða staða á vellinum hentar þér best og hvaða stöðu er skemmtilegast að spila?
Spila sem framliggjandi miðjumaður, fyrir aftan strikerinn.
Ómar Þór Ómarsson, 16, Kópavogur
Hvaða aðra 10 leikmenn myndirðu helst vilja hafa með þér í liði?
Casillas, Ramos, Vidic, Rio, Lahm, Lampard, Fabregas, Messi, Ronaldo, Villa
Sindri Hrafn Friðþjófsson, 18 ára, Snæfellsbær
Ef öll stórliðinn (Real Madrid Barcelona Manchester United Arsenal Chelsea Inter AC Milan) myndu hafa áhuga á þér, hvert myndirðu fara?
Real, Barca eða Man Utd.
Atli Sigmundsson, 16 ára, Hraunmannahreppur
Spilarðu FIFA?
Já.
Þorkell Þorleifsson, 17 ára, Borgarnes
Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta?
Byrjaði að æfa eitthvað um 4-6 ára.
Jóhann Bergsteinsson, 17 ára, Njarðvík
Myndirðu fara til Liverpool ef þeir ef þeir myndu bjóða í þig í janúar og Hoffenheim gæfi þér grænt ljós til að fara?
Veit það ekki, það yrði erfið ákvörðun.
Oddur Hólm Haraldsson, 16 ára, Kópavogur
Hvaða máltíð finnst þér best á KFC?
Nr.11.
Heiðar Atli Styrkársson, 15 ára, Mosfellssbær
Þegar þú varst lítill, vildiirðu alltaf vera atvinnumaður i fótbolta?
Já það var alltaf markmiðið hjá mér.
Ívar Máni Garðarsson
Klukkan hvað ertu að vakna á virkum dögum?
Fer eftir því hvort það sé æfing eða ekki, ef það er æfing þá um 9 leytið annars um 11-12.
Ívar Máni Garðarsson
Hvað borðarðu? Ertu með einhverja rútínu?
Borða venjulega mikið af pasta,kjúkling og kjöti á kvöldin.
Haraldur Jóhannesson, 29 ára, Grindavík
Sæll Gylfi. Á að skella sér á sjóinn á Blika í sumarfríinu?
Hef bara ekki í tíma í það í sumar útaf EM.
Andrés Andrésson, 14 ára, Reykjavík
Hvað telur þú hafa átt mestan þátt í því að þú komst svona langt í fótbolta?
Æfingar.
Sævar, 10 ára
Hvaða lið stefnirðu á að fara í?
Draumurinn er Man Utd.
Andri Jónasson, 16 ára
Hver er besti vinur þinn í Reading og Hoffenheim?
Simon Church í Reading og Demba Ba hérna í Hoffenheim.
Kristján Andri Marteinsson, 14 ára, Kópavogur
Hvernig var venjulegur dagur hjá þér þegar þú varst ungur? Varstu alltaf að leika þér með bolta?
Ég var eins mikið og ég gat í fótbolta með félögunum þegar við gátum.
Sæþór Bragi Ágústsson, 15 ára, Skagaströnd
Hvaða íþróttum hefurðu gaman af, öðrum en fótbolta?
Aðallega golfi.
Hanna Björg Birgisdóttir
Hvað ertu með í vikulaun í íslenskum krónum?
Er bara ekki með það á hreinu.
Alexander Freyr Einarsson, 20 ára, Reykjavík
Hversu erfitt var að standast freistingar á borð við áfengi? Hvað gerðirðu til að standast þær?
Það var ekkert svo erfitt fyrir mig þar sem mér hefur aldrei langað til að drekka.


