Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 07. apríl 2011 16:30
Arnar Páll Garðarsson
Heimild: Football-italia 
Juventus hefur hafið viðræður um Aquilani
Mynd: Getty Images
Juventus hefur hafið viðræður við Liverpool um að kaupa Alberto Aquilani, samkvæmt La Gazzetta dello Sport.

Aquilani er sem stendur á láni hjá Juventus og getur félagið keypt hann á 16,5 milljónir evra í lok tímabils.

Juventus er hinsvegar að reyna að minnka það verð talsvert og er félagið í góðri stöðu því Aquilani hefur gefið það út að hann vilji vera áfram í Ítalíu.

La Gazzeto dello Sport greinir frá því að Juventus séu tilbúnir að bjóða 12 milljónir evra í leikmanninn.

Aquilani þénar 3,5 milljónir evra á ári og vonast Juventus einnig eftir því hann sé tilbúinn að taka á sig launalækkun.


banner
banner
banner