Jón Ólafur Daníelsson þjálfari kvennaliðs ÍBV var að vonum hæstánægður með 5-0 sigur sinna stúlkna gegn sterku liði Þórs/KA í fyrstu umferð Pepsi deildar kvenna um helgina. ÍBV eru nýliðar í deildinni og þrátt fyrir að þær hafi styrkt hóp sinn verulega síðan í fyrrasumar viðurkennir Jón Óli að úrslitin á Akureyri hafi verið betri en hann þorði að vona.
„Það er ekki hægt að hugsa sér þetta betra. Við áttum ekki von á neinu svona þegar við fórum norður,“ sagði Jón Óli við Fótbolta.net.
Aðspurður hvort að sigurinn geri það að verkum að ÍBV eigi að vera teknar alvarlega í titilbaráttunni í sumar vill hann þó ekki endilega meina að svo sé.
„Það er nú ekki alveg svo djúpt í árinni tekið hjá okkur. Við gátum eiginlega ekki sett okkur nein markmið því við vissum ekki hvað við vorum sterkar og vitum það ekki enn þó þessi leikur hafi gengið vel. Það getur komið fyrir að allt gangi upp hjá þér og ekkert hjá andstæðingum.“
Jón Óli var vitanlega mjög sáttur með spilamennsku sinna stúlkna á Akureyri, enda ekki á hverjum degi sem nýliðar deildarinnar vinna svona glæsta sigra gegn toppliðunum.
„Varnarmennirnir okkar og miðjumenn voru feykilega skipulagðir og sterkir einn á móti einum, sendingar gengu vel og menn voru fljótir að vinna sér pláss til að fá boltann. Varnarlega og sóknarlega gekk nú flest upp. Í þessum leik var þetta eins gott og mögulegt var.“
Æfingaferðin gekk mjög vel
Miklar breytingar voru gerðar á liði ÍBV fyrir sumarið og segir Jón Óli að það hafi gengið vel að smella liðinu saman. Segir hann að æfingaferð liðsins hafi gert þar gæfumuninn, auk þess sem flestir leikmenn liðsins voru í Vestmannaeyjum.
„Æfingaferðin gekk mjög vel hjá okkur og þar lærðu leikmenn vel á hvorn annan. Svo hjálpaði það til að við fengum til okkar Dönku og Vesnu strax í febrúar. Æfingaferðin var svolítill vendipunktur í því hvernig menn gátu kynnst. Svo kemur það í ljós næst hversu vel þetta gekk í raun og veru.“
Aðspurður hvort að þessi stórsigur setji aukna pressu á liðið segir Jón Óli: „Nei nei, þetta eru það vel gefnar stelpur að þær vita að þessi leikur telur ekkert þegar sá næsti kemur.“


